Hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu sögð „reiðarslag“

Fundur á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar ályktaði harðlega gegn fyrirhugaðri hækkun á virðisaukaskatti ferðaþjónustunnar.

Virðisaukaskattur á ferðaþjónustu verður færður í hærra þrep, í samræmi við stefnu stjórnvalda um að fækka undanþágum í kerfinu, segir ráðherra ferðamála.
Virðisaukaskattur á ferðaþjónustu verður færður í hærra þrep, í samræmi við stefnu stjórnvalda um að fækka undanþágum í kerfinu, segir ráðherra ferðamála.
Auglýsing

„Verði virð­is­auka­skattur á ferða­þjón­ustu tvö­fald­aður eins og for­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar hafa boðað mun það hafa í för með sér grafal­var­legar afleið­ingar fyrir fyr­ir­tæki og starfs­fólk í ferða­þjón­ustu um land allt.“

Þannig hefst ályktun fund­ars Sam­taka ferða­þjón­ust­unnar frá því í gær­kvöldi, þar sem rætt var um fyr­ir­hug­aða hækkun á virð­is­auka­skatti á ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki. 

Ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar um að færa ferða­þjón­ust­una í hærra virð­is­­auka­skatt­þrep er í fullu sam­ræmi við stefnu stjórn­­­valda um að fækka und­an­þágum í virð­is­­auka­skatt­­kerf­inu, seg­ir Þór­­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir, ráð­herra ferða­mála, í við­tali við Morg­un­blað­ið.

Auglýsing

Bene­dikt Jó­hann­es­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, mun í dag kynna fjár­­­mála­­á­ætl­­un rík­­is­ins sem fel­ur m.a. í sér breyt­ing­ar á virð­is­­auka­skatt­­kerf­inu.

Bjarni Bene­dikts­­son for­­sæt­is­ráð­herra greindi fyrst­ur frá áformun­um á árs­fundi Sam­­taka at­vinn­u­lífs­ins í gær en skömmu áður voru for­yst­u­­menn ferða­þjón­ust­unn­ar boð­aðir á fund Þór­­dís­ar Kol­brún­­ar og Bene­dikts og þeim gert grein fyr­ir fyr­ir­hugðum breyt­ing­­um. 

Fer ferða­þjón­ust­an úr 11 pró­­senta virð­is­­auka­skatt­þrepi upp í það hærra, sem nú er 24 pró­­sent en stend­ur til að lækka sam­hliða breyt­ing­unni niður í 22,5 pró­­sent.

Vöxt­ur­inn í ferða­þjón­ustu hefur verið ævin­týri lík­astur á und­an­förnum árum, en gert er ráð fyrir að 2,3 millj­ónir manna heim­sæki landið á þessu ári en í fyrra sóttu 1,8 millj­ónir ferða­manna landið heim.

Óhætt er að segja að þessum áformum stjórn­valda hafi verið kröft­ug­lega mót­mælt á fundi í gær­kvöldi, og sam­ráðs­leysi gagn­rýnt. Segir í ályktun fund­ar­ins að alvar­leg­astar verði afleið­ing­arnar á lands­byggð­inn­i. Mikil geng­is­styrk­ing og kostn­að­ar­hækk­anir stefna nú þegar afkomu fyr­ir­tækja í grein­inni í mikla hættu. Með boð­uðum skatta­hækk­unum rík­is­stjórn­ar­innar versnar sam­keppn­is­hæfni Íslands til mik­illa muna.

Ferða­þjón­ustan er grunn­stoð í íslensku atvinnu­lífi og með óyf­ir­veg­uðum aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar er vegið að fram­tíð­ar­mögu­leikum grein­ar­innar og íslensku efna­hags­lífi.

Ferða­þjón­usta er í eðli sínu alþjóð­leg atvinnu­grein. Íslensk ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki starfa því á alþjóð­legum mark­aði og í sam­keppni við erlenda áfanga­staði þar sem ferða­þjón­ustan er almennt í lægri þrepum virð­is­auka­skatts­kerf­is­ins. Það hefur sýnt sig að þau lönd sem eru t.a.m. með gisti­staði í efri skatt­þrepum hafa lotið í lægra haldi í sam­keppni við aðra áfanga­staði. Til­lögur um hækkun á virð­is­auka­skatti vega þannig alvar­lega að sam­keppn­is­hæfni Íslands.

Þá lýsa Sam­tök ferða­þjón­ust­unnar yfir miklum von­brigðum með sam­ráðs­leysi stjórn­valda þegar kemur að eins umfangs­miklum breyt­ingum og fyr­ir­hug­aðar hækk­anir eru.

Fjöl­mennur félags­fundur Sam­taka ferða­þjón­ust­unnar skorar á rík­is­stjórn­ina að láta af áformum um hækkun virð­is­auka­skatts á íslenska ferða­þjón­ust­u,“ segir orð­rétt í ályktun fund­ar­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None