IKEA byggir 36 íbúða blokk fyrir starfsfólk sitt

Leiga á ódýrustu íbúðunum verður undir 100 þúsund krónum á mánuði. Starfsfólki COSTCO og námsmönnum býðst líka að flytja í blokkina. Húsnæðismál starfsmanna eru mál atvinnurekenda, segir framkvæmdastjóri IKEA

Verslun IKEA í Garðabæ.
Verslun IKEA í Garðabæ.
Auglýsing

Hús­gagna­versl­unin IKEA ætlar að byggja 36 íbúða blokk í Urriða­holti í Garðabæ sem verður meðal ann­ars hugsuð fyrir starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins en einnig kemur til greina að leigja starfs­fólki COSTCO og náms­mönn­um. Leigu­verð minnstu íbúð­anna verður undir 100 þús­und krónum á mán­uði. Ástæða þess að IKEA ræðst í bygg­ingu blokk­ar­innar er meðal ann­ars sú að halda í gott starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins og mæta bráða­vanda þess fyrir hús­næði. Blokkin verður fyrsta svans­vott­aða íbúð­ar­hús­næðið á Íslandi. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Íbúða­lána­sjóði.

Þór­ar­inn Ævars­son, fram­kvæmda­stjóri IKEA, sagði frá verk­efn­inu á nýaf­stöðnu mál­þingi Íbúða­lána­sjóðs um bygg­ingu hag­kvæmra íbúða. Hann segir hús­næð­is­mál starfs­fólks líka vera mál atvinnu­rek­enda. „Fram­tíð­ar­víg­völlur fyr­ir­tækja í fram­línu­rekstri, t.a.m smá­sölu­fyr­ir­tækja, verður um hæft starfs­fólk. Sá sem nær til sín og heldur hæf­asta starfs­fólk­inu stendur uppi sem sig­ur­veg­ari. Við höfum ítrekað orðið fyrir því að hæft starfs­fólk hefur látið af störfum hjá okkur vegna vanda­mála sem tengj­ast hús­næði á einn eða annan hátt,“ sagði Þór­ar­inn meðal ann­ars í erindi sínu. „Fólk hefur hætt hjá okkur af því að það hefur þurft að flytja og endað á stað þar sem það nær ekki lengur strætó í vinn­una. Ef manni er annt um starfs­fólkið sitt þá vill maður aðstoða það á þessum erf­iða hús­næð­is­mark­að­i.“

Í til­kynn­ingu Íbúða­lána­sjóðs segir að starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins sé um 350 manns og að því muni fjölga í 450 á næstu árum. Þór­ar­inn sagði á mál­þing­inu að hátt hlut­fall starfs­fólks­ins vera ungt fólk eða inn­flytj­endur og væru margir á hrak­hólum varð­andi hús­næði. „Þrátt fyrir að við greiðum ágætis laun, þá verður seint hægt að tala um að almennir starfs­menn í smá­sölu­verslun séu í efri tekju­mörk­um. Það þýðir að stór hluti starfs­manna IKEA ver allt of stórum hluta ráð­stöf­un­ar­tekna sinna í hús­næði sem oft og tíðum er í lélegum gæða­flokki.“ Hann sagði að heppi­legt hús­næði, á góðu verði,  í göngu­fjar­lægð við vinnu­stað, nauð­syn­lega þjón­ustu og fal­lega nátt­úru væri að mati IKEA mjög verð­mætt til að laða að starfs­fólk. „Ef það að byggja upp og reka leigu­hús­næði fyrir starfs­fólk er mögu­legt án þess að vinnu­veit­andi beri af því þungar byrð­ar, þá getur þetta í raun verið álit­legur kost­ur.“

Auglýsing
Í til­kynn­ing­unni segir enn fremur að upp­haf­lega hafi verið reynt að byggja mjög ódýrar íbúðir en af ýmsum ástæðum hafi það ekki tek­ist. T.a.m. var bygg­ing­ar­lóðin dýr, vinnan við svans­vott­un­ina hækk­aði bygg­ing­ar­kostn­að­inn tölu­vert, auk þess sem ákveðið var að spara ekk­ert til hvað varð­aði gæði hönn­unar og efn­is. Þór­ar­inn nefndi í fram­sögu sinni að einnig bygg­ing­ar­reglu­gerðin hafi verið til ama. „Þó svo að því sé haldið fram að bygg­ing­ar­reglu­gerðin komi til móts við þá sem eru að byggja minni íbúð­ir, þá höfum við rek­ist á það að það er enn þónokkuð í land.“ Sem dæmi um íþyngj­andi kröfu nefndi Þór­ar­inn að bað­her­bergi þurfa að vera 5 fm í 25 fm íbúð og að krafa um stærð svala taki ekki til­lit til smæðar íbúða og hversu fáir séu lík­legir til að vera í hverri íbúð, komi til elds­voða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None