Seðlabankinn: Höfðum engar upplýsingar um samning við Deutsche Bank

Seðlabankinn seldi skuldabréf útgefin af Kaupþingi skömmu áður en félagið fékk 50 milljarða eingreiðslu frá Deutsche Bank vegna uppgjörs á ágreiningsmáli.

Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri.
Auglýsing

Seðla­banki Íslands hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna sölu bank­ans á skulda­bréfum Kaup­þings fyrir um 19 millj­arða, og segir í yfir­lýs­ing­unni að það hafi alltaf staðið til að selja bréfin við fyrsta tæki. 

Þá segir í yfir­lýs­ing­unni að bréfin sem um ræðir og voru gefin út af Kaup­þingi séu ekki af því tagi sem seðla­bankar almennt eigi, og að bank­inn hafi ekki búið yfir neinum upp­lýs­ingum um samn­ing Kaup­þings og Deutsche Bank.

Þau bréf sem hér um ræðir og gefin voru út af Kaup­þingi eru ekki af því tagi sem seðla­bankar almennt eiga: Því stóð alla tíð til að selja þau við fyrsta tæki­færi. Seðla­banki Íslands seldi skulda­bréfin auk þess til þess að fyr­ir­byggja hags­muna­á­rekstra þegar sala Kaup­þings á Arion banka og tengdir þættir kæmu til umfjöll­unar og eftir atvikum afgreiðslu í Seðla­bank­an­um. Engar upp­lýs­ingar lágu opin­ber­lega fyrir um samn­ing Kaup­þings við Deutsche Bank. Skulda­bréfin voru seld í opnu ferli fyrir milli­göngu alþjóð­lega fjár­mála­fyr­ir­tæk­is­ins Morgan Stanley og allir sem upp­fylltu almenn skil­yrði (Mifid, KYC, AML) gátu gert kauptil­boð,“ segir í yfir­lýs­ingu Seðla­bank­ans.

Þar segir enn­frem­ur: „Bréfin voru síðan seld hæst­bjóð­anda. Engir fyr­ir­varar voru gerðir varð­andi end­ur­heimtur úr búinu enda hefðu slík ákvæði getað haft nei­kvæð áhrif á sölu­verð bréf­anna og jafn­vel gert þau óselj­an­leg. Samn­ingur Kaup­þings og Deutsche Bank, sem kynntur var eftir sölu Seðla­bank­ans á bréf­un­um, kom aðilum á þessum mark­aði á óvart, þar með talið Seðla­bank­an­um. Sala bank­ans á Kaup­þings­bréf­unum var eðli­leg og skyn­sam­leg á grund­velli þeirra upp­lýs­inga sem lágu fyrir þegar ákvörðun um hana var tek­in. Seðla­bank­inn mun eigi að síður kanna hvort eðli­lega var staðið að upp­lýs­inga­gjöf stjórnar Kaup­þings á þessum tíma.“

Auglýsing

Deutsche Bank lok­aði ágrein­ings­máli við Kaup­þing með 50 millj­arða króna ein­greiðslu, og rauk verð­gildi bréfa í Kaup­þingi upp um 30 pró­sent á eft­ir­mark­aði vegna þess­ara við­skipta. Eins og segir í yfir­lýs­ingu Seðla­bank­ans þá seg­ist bank­inn ekki hafa haft neinar upp­lýs­ingar um þessi við­skipt­i. 

Þeir sem högn­uð­ust á þessu upp­gjöri, voru ekki síst vog­un­ar­sjóð­irnir sem nú hafa keypt um 30 pró­sent hlut í Arion banki, og eiga for­kaups­rétt á meira en 20 pró­sent til við­bót­ar. 

Eftir kaupin er Kaup­skil, félag í eigu Kaup­­þings, enn stærsti eig­andi Arion banka með 57,9 pró­­sent hlut. Íslenska ríkið á 13 pró­­sent en sjóð­irnir Attestor Capi­­tal LLP (í gegnum Trinity Invesment Designated Acit­i­vity Company) og Taconic Capi­­tal Advis­ors UK LLP (í gegnum TCA New Sidecar III s.a.r.l.) eiga nú 9,99 pró­­sent hlut hvor. Þá mun Sculptor Invest­­ments s.a.r.l. (fé­lag tengt Och-Ziff Capi­­tal Mana­­gement Group) eiga 6,6 pró­­sent hlut og Gold­man Sachs International 2,6 pró­­sent hlut (í gegnum ELQ Investors II Ltd.).

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None