Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Meniga hefur lokið við hlutafjáraukningu upp á 7,5 milljónir evra, sem jafngildir 900 milljónum króna. Það er sænski fjárfestingasjóðurinn Industrifonden og núverandi fjárfestar sem lögðu fram féð. Þeir eru Frumtak, Kjölfesta og Velocity Capital frá Hollandi. Samhliða mun Sofia Ericsson frá Industrifonden taka sæti í stjórn Meniga.
Benedikt Orri Einarsson, fjármálastjóri Meniga segir að til að byggja upp fyrirtæki eins og Meniga, með háleit markmið um vöxt á erlendum mörkuðum, sé mikilvægt að geta fengið alþjóðlega fjárfesta að borðinu með sérhæfða þekkingu. „Það er því ánægjulegt að bjóða Industrifonden velkominn í sterkan hóp fjárfesta til áframhaldandi uppbyggingar og vaxtar.“
Í tilkynningu segir að fjármögnuninni sé ætlað að efla enn frekar sókn fyrirtækisins á erlenda markaði en auk áherslu á heimilisfjármálahugbúnað hafi Meniga meðal annars þróað neyslutengt tilboðskerfi.„Tilboðskerfinu er ætlað að hjálpa einstaklingum og fjölskyldum að spara með sérsniðnum tilboðum ásamt því að gera fyrirtækjum kleift að nýta betur markaðsfé sitt með því að ná til réttra viðskiptavina með beinum afsláttum. Íslenskum notendum Meniga stendur til boða að nýta sér slík tilboð, sem ganga undir heitinu „Kjördæmi“ hérlendis, og aðrar lausnir Meniga gjaldfrjálst á www.meniga.is eða í Meniga appinu fyrir iPhone og Android síma.“
Meniga þróar heimilisfjármálalausnir fyrir banka og fjármálastofnanir sem notaðar eru í næstu kynslóð netbanka til að stórbæta þjónustu við viðskiptavini. Meðal viðskiptavina Meniga eru margir stærstu banka heims en þeirra á meðal eru Santander, Commerzbank, ING Direct og Intesa Sanpaolo. Þannig eru hugbúnaðarlausnir Meniga notaðar í netbönkum í um 20 löndum með rúmlega 40 milljónir virka notendur.
Sofia Ericsson segir að Industrifonden sé mjög spennt fyrir því fyrir þeim tækifærum sem búa í gagnadrifinni stafrænni bankastarfsemi og „stolt af því að styðja við bakið á hinu frábæra teymi hjá Meniga.“