Tryggingafélagið VÍS hefur gengið frá kaupum á 3,06 prósenta hlut Eignasafns Seðlabanka Íslands (ESÍ) í Kviku, en greint er frá þessu í Markaðnum í dag.
Eftir kaupin á VÍS liðlega 25 prósenta hlut og er langsamlega stærsti einstaki hluthafi fjárfestingabankans, að því er segir í umfjölluninni. Hlutur ESÍ var auglýstur til sölu um miðjan síðasta mánuð.
Áður hafði VÍS keypt 22 prósenta hlut í Kviku í ársbyrjun og nam heildarkaupverðið þá um 1,6 milljörðum króna. Heildarvirði Kviku er því um 7,2 milljarðar króna, sé mið tekið af því kaupverði.
Ekki fást staðfestar upplýsingar um hvað félagið greiddi fyrir hlut Seðlabankans í Kviku en ef gengið var hið sama og í janúar síðastliðnum, þegar VÍS keypti bréf í bankanum fyrir 5,4 krónur á hlut, þá nemur kaupverðið um 230 milljónum króna, segir í Markaðnum.
„Í hluthafahópi Kviku eru jafnframt tveir stærstu einkafjárfestarnir í VÍS með samanlagt fimmtán prósenta hlut. Hjónin Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir og Guðmundur Örn Þórðarson, fyrrverandi aðaleigendur Skeljungs, eignuðust þannig ríflega átta prósenta hlut í bankanum í desember 2016 auk þess sem félagið Grandier ehf., sem er í eigu Sigurðar Bollasonar og meðfjárfesta, keypti á sama tíma um sjö prósent. VÍS og stórir hluthafar í félaginu eiga því núna samanlagt um 40 prósenta hlut í Kviku banka,“ segir í umfjöllun Markaðarins.
Miðað við gengi bréfa VÍS á markaði í morgun er markaðsvirði félagsins nú 23,4 milljarðar.