Kína óttast hörmungar á Kóreuskaga

Stjórnvöld í Kína biðja Bandaríkjamenn og Norður-Kóreubúa um að stíga varlega til jarðar til þess að forða stórslysi á Kóreuskaganum. Ástandið sé eldfimt núna og átök geti brotist út á hverri stundu.

Norður Kórea - Kim Jong-un
Auglýsing

Kín­verjar hvetja Norð­ur­-Kóreu og Banda­ríkin til þess að stíga var­lega til jarðar til að forða því að hörm­ungar brjót­ist út á Kóreu­skag­an­um. Wang Yi, utan­rík­is­ráð­herra Kína, segir að ástandið á svæð­inu sé vara­samt og að átök geti brot­ist út á hverri stund­u. 

Þetta sagði hann í dag, en spennan hefur magn­ast í sam­skiptum Banda­ríkj­anna og Norð­ur­-Kóreu, eftir að Banda­ríkja­menn hafa aukið her­styrk sinn í kringum Kóreu­skag­ann. 

Búist er við því að Norð­ur­-Kóreu­menn geri kjarn­orku­til­raunir á morg­un, dag­inn sem þess er minnst að 105 ár eru frá því að Kim Il-sung, stofn­andi rík­is­ins, fædd­ist. Það yrði í sjötta sinn sem slíkar til­raunir yrðu gerðar frá árinu 2006. 

Auglýsing

„Ef stríð brýst út verður nið­ur­staðan að allir tapa og eng­inn getur sigr­að. Það er ekki sá sem notar harð­ara orða­gjálfur eða steytir stærri hnefa sem mun sigr­a.“ 

Varaut­an­rík­is­ráð­herra Norð­ur­-Kóreu, Han Song-ryol, sagði fyrr í dag að Norð­ur­-Kórea gæti ekki haldið að sér höndum ef Banda­ríkin myndu gera árás. Norð­ur­-Kórea myndi einnig gera kjarn­orku­til­raunir þegar það hent­aði. Han sagði að ummæli Don­alds Trump Banda­ríkja­for­seta á Twitter væru árás­ar­gjörn og yllu vand­ræð­u­m. 

Miklum fjölda erlendra blaða­manna var boðið til Pjongj­ang, höf­uð­borgar Norð­ur­-Kóreu, til þess að minn­ast 105 ára afmælis Kim Il-sung, sem er einnig talað um sem dag sól­ar­inn­ar. 

Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, fer til Suð­ur­-Kóreu á sunnu­dag­inn. Hins vegar hefur verið gefið út að búið sé að gera aðrar ráð­staf­anir fyrir hann ef Norð­ur­-Kóreu­menn gera kjarn­orku­til­raun­ir. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None