Auðhumla, samvinnufélag kúabænda, hagnaðist um 363,7 milljónir króna eftir skatta í fyrra og varð því töluverður viðsnúningu frá fyrra ári þegar reksturinn var í tapi. Þá var 137 milljóna tap á rekstrinum.
Þennan rúmlega 500 milljóna viðsnúning má „fyrst og fremst rekja til tekna af erlendri starfsemi tengdri skyrsölu og söluhagnaðar af eignasölu“ segir í tilkynningu frá Auðhumlu.
Aðalfundur Auðhumlu samvinnufélags kúabænda fór fram í fundarsal Mjólkursamsölunnar á Selfossi í dag.
Heildarlaunagreiðslur hjá félaginu og dótturfyrirtækjum þess 3.183 milljónir króna á síðasta ár. Eigið fé samstæðunnar var í árslok 7,5 milljarðar króna.
Kúabændum sem leggja inn mjólk til Auðhumlu fækkaði um 38 árið 2016 og er það hraðari fækkun en hefur verið um árabil en innleggjendur í árslok voru 546. „Margt bendir til að viðlíka fækkun verði á yfirstandandi ári og verði innleggjendur þá um 500 í lok þessa árs,“ segir í tilkynningu frá Auðhumlu.
Á aðalfundinum var tilkynnt um samstarfsverkefni Auðhumlu svf. og Matís ohf. sem miðar að því að styðja og styrkja frumkvöðla til þess að þróa og koma nýjum hugmyndum byggðum á mjólk á framfæri. Styrkirnir eru að hámarki 3 milljónir en stuðningurinn felst í t.d sérfræðiráðgjöf, aðstoð við að koma vöru á markað, uppsetningu vinnuferla, vöruþróun, umbúðahönnun, matvælaöryggi og mælingar en einnig kemur til greina að standa fyrir námskeiðum fyrir smáframleiðendur eða afla nýrrar þekkingar.
Ársreikningurinn, sem hér er aðgengilegur, er samstæðureikningur Auðhumlu svf. og dótturfélaga. Þau eru Mjólkursamsalan ehf. (MS), sem er í 90,1% eigu félagsins, Bitruháls ehf. og Kostur ehf. sem eru í 100% eigu Auðhumlu. Þá nær reikningurinn til Mjólkurbús Flóamanna ehf. og Norðurmjólkur ehf. sem eru ekki í rekstri en í 100% eigu Auðhumlu svf., segir í tilkynningu Auðhumlu.