Stjórn Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) gagnrýnir harðlega að fyrirhuguð hækkun bóta almannatrygginga á árunum 2018 til 2022 „eigi einungis að verða á bilinu 3,1%- 4,8% í fjármálaáætlun ríkisins til næstu fimm ára.“
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Öryrkjabandalagi Íslands.
„Um er að ræða mjög lága prósentuhækkun til örorkulífeyrisþega, sem eru almennt með mjög lágar tekjur. Kjör þessa hóps hafa dregist mjög aftur úr kjörum meginþorra landsmanna. Ljóst er af tillögunum að stjórnvöld hafa ekki í hyggju að bæta kjör örorkulífeyrisþega, sem standa verst, þ.e. þeirra sem hafa engar eða lágar aðrar tekjur en lífeyri almannatrygginga til framfærslu,“ segir í tilkynningu frá ÖBÍ.
Í greinargerð ÖBÍ er gagnrýnt hversu lágar fjárhæðir eru áætlaðar til uppbyggingar innviða og þjónustu í heilbrigðiskerfinu, er með því tekið undir gagnrýni sem meðal annars hefur komið frá Páli Matthíassyni, forstjóra LSH.
Þá segir að sérstaklega þurfi að „styrkja og styðja menntastofnanir í landinu þannig að ljóst sé að allt nám sé aðgengilegt á öllum skólastigum, á öllum aldri.“
Greinargerð ÖBÍ fer hér í heild sinni:
Greinargerð:
Hvað þýða tillögur um 3,1% til 4,8% hækkun í krónutölum?
Óskertur örorku- og endurhæfingarlífeyrir fyrir árið 2017 er 227.883 kr. (fyrir skatt). Fyrirhuguð 3,1% til 4,8% hækkun í byrjun árs 2018 myndi þýða að hann yrði á bilinu 234 til 238 þúsund kr. á mánuði. Eftir skatt yrði upphæðin rúmlega 200 þúsund krónur á mánuði. Enginn lifir af þessum tekjum og allra síst einstaklingar sem þurfa oft að greiða hærra hlutfall ráðstöfunartekna sinna í heilbrigðiskostnað, hjálpartæki og ýmsa aðra þjónustu.
Á tímabilinu sem um ræðir, árin 2018-2022, myndi krónutöluhækkun óskerts örorkulífeyris almannatrygginga vera á bilinu sjö til þrettán þúsund krónur á mánuði (fyrir skatt) um hver áramót.
Örorkulífeyrir á að tryggja framfærslu þeirra sem ekki geta tekið þátt á vinnumarkaði eða hafa mjög takmarkaða starfsgetu. Með þeirri leið, sem lagt er upp með í þingsályktunartillögunni, mun bilið á milli lágmarkslauna og óskert örorkulífeyris verða aukið til muna. Slíkt gengur algjörlega gegn loforði Viðreisnar, flokks fjármálaráðherra, fyrir alþingiskosningar árið 2016, um að „enginn lífeyrisþegi fái minna en sem nemur lágmarkslaunum.“ Lágmarkslaun hækka í 300.000 kr. árið 2018. Ef hærri prósentutalan er tekin (4,8%) fimm ár í röð, næði óskertur örorkulífeyrir upp í rúm 288 þús. árið 2022. en lágmarkslaun munu verða 300.000 á næsta ári.