Félagið PAI Partners SAS, sem er fjárfestingafélag sem einblínir á Evrópumarkað, er sagt vera að undirbúa yfirtökutilboð í hollenska drykkjuvöruframleiðandann Refresco sem íslenska félagið Stoðir hf., áður FL Group, á ennþá 8,8 prósent hlut í.
Fyrr í mánuðinum var tilboði þess upp á 1,4 milljarða evra neitað, en samkvæmt umfjöllun Bloomberg gæti endurnýjað tilboð hljóðað upp á 1,62 milljarða evra, eða sem nemur um 182 milljörðum króna. Miðað við það verð er 8,8 prósent hlutur 16,3 milljarða króna virði.
Samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir síðasta ár, sem lagður var fram á aðalfundi 21. apríl síðastliðinn, var hlutur Stoða metinn á tæplega 13 milljarða.
Refresco er skráð á markað í Hollandi og er markaðsverð þess, miðað við lokun markaða í gær, 1,44 milljarðar evra, um 167 milljarðar króna.
Ársreikningurinn var samþykktur 15. febrúar, en þá var Glitnir HoldCo, félagið sem varð til um eignir gamla Glitnis, stærsti eigandi Stoða með ríflega 40 prósent hlut. Arion banki kom næstur með 16,4 prósent hlut og Landsbankinn 13,4 prósent.
Eins og greint var frá í Markaðnum í gær, þá hefur eignarhald á Stoðum breyst á skömmum tíma, og eru íslenskir fjárfestar nú orðnir meirihlutaeigendur eftir að hafa keypt eignarhlutinn af Glitni.
Auk TM samanstendur kaupendahópurinn af félögum á vegum Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra FL Group, Einari Erni Ólafssyni, fyrrverandi forstjóra Skeljungs, Örvari Kjærnested, fjárfesti og stjórnarmanni í TM, og Magnúsi Ármanni Jónssyni, fjárfesti og fyrrverandi stjórnarmanni í FL Group. Jón hefur setið í stjórn Refresco frá árinu 2009 og þekkir því félagið vel.
Tekjur þess í fyrra námu 2,1 milljarði evra, samkvæmt ársreikningi þess, eða sem nemur um 240 milljörðum króna. Félagið er að mestu með Evrópu sem heimamarkað en hefur einnig stigið skref inn á Bandaríkjamarkað.
Samkvæmt fyrirtækjaskrá hefur ekki verið tilkynnt um þessi eigendaskipti né breytingu á stjórn. Nýja stjórn skipa Jón Sigurðsson, Iða Brá Benediktsdóttir, frá fyrirtækjasviði Arion banka, og Örvar Kjærnested. Forstjóri félagsins er Júlíus Þorfinnsson.