Nýtt yfirtökutilboð á leiðinni í Refresco - Miklir hagsmunir Stoða

Markaðsvirði Refresco er um 170 milljarðar íslenskra króna. Nýlega var yfirtökutilboði neitað í félagið en annað er á leiðinni. Jón Sigurðsson á sæti í stjórn Refresco.

fl group
Auglýsing

Félagið PAI Partners SAS, sem er fjár­fest­inga­fé­lag sem ein­blínir á Evr­ópu­mark­að, er sagt vera að und­ir­búa yfir­tökutil­boð í hol­lenska drykkju­vöru­fram­leið­and­ann Refresco sem íslenska félagið Stoðir hf., áður FL Group, á ennþá 8,8 pró­sent hlut í. 



Fyrr í mán­uð­inum var til­boði þess upp á 1,4 millj­arða evra neit­að, en sam­kvæmt umfjöllun Bloomberg gæti end­ur­nýjað til­boð hljóðað upp á 1,62 millj­arða evra, eða sem nemur um 182 millj­örðum króna. Miðað við það verð er 8,8 pró­sent hlutur 16,3 millj­arða króna virð­i. 



Sam­kvæmt árs­reikn­ingi félags­ins fyrir síð­asta ár, sem lagður var fram á aðal­fundi 21. apríl síð­ast­lið­inn, var hlutur Stoða met­inn á tæp­lega 13 millj­arða. 

Refresco er skráð á markað í Hollandi og er mark­aðs­verð þess, miðað við lokun mark­aða í gær, 1,44 millj­arðar evra, um 167 millj­arðar króna.

Árs­reikn­ing­ur­inn var sam­þykktur 15. febr­ú­ar, en þá var Glitnir HoldCo, félagið sem varð til um eignir gamla Glitn­is, stærsti eig­andi Stoða með ríf­lega 40 pró­sent hlut. Arion banki kom næstur með 16,4 pró­sent hlut og Lands­bank­inn 13,4 pró­sent. 

Auglýsing

Hér má sjá eignarhald Stoða eins og það var um áramót.

Eins og greint var frá í Mark­aðnum í gær, þá hefur eign­ar­hald á Stoðum breyst á skömmum tíma, og eru íslenskir fjár­festar nú orðnir meiri­hluta­eig­endur eftir að hafa keypt eign­ar­hlut­inn af Glitn­i. 

Auk TM sam­anstendur kaup­enda­hóp­ur­inn af félögum á vegum Jóns Sig­urðs­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra FL Group, Ein­ari Erni Ólafs­syni, fyrr­ver­andi for­stjóra Skelj­ungs, Örv­ari Kjærne­sted, fjár­festi og stjórn­ar­manni í TM, og Magn­úsi Ármanni Jóns­syni, fjár­festi og fyrr­ver­andi stjórn­ar­manni í FL Group. Jón hefur setið í stjórn Refresco frá árinu 2009 og þekkir því félagið vel.

Tekjur þess í fyrra námu 2,1 millj­arði evra, sam­kvæmt árs­reikn­ingi þess, eða sem nemur um 240 millj­örðum króna. Félagið er að mestu með Evr­ópu sem heima­markað en hefur einnig stigið skref inn á Banda­ríkja­mark­að. 

Refresco er stór drykkjarvöruframleiðandi og eru vörur þess á mörkuðum víða í Evrópu.

Sam­kvæmt fyr­ir­tækja­skrá hefur ekki verið til­kynnt um þessi eig­enda­skipti né breyt­ingu á stjórn. Nýja stjórn skipa Jón Sig­urðs­son, Iða Brá Bene­dikts­dótt­ir, frá fyr­ir­tækja­sviði Arion banka, og Örvar Kjærne­sted. For­stjóri félags­ins er Júl­íus Þor­finns­son.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None