Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Kaupþings Singer & Friedlander í Bretlandi og stjórnandi hjá Virðingu, mun taka við Sigurði Atla Jónssyni sem forstjóri Kviku fjárfestingabanka, að því er fram kom í kvöld á fréttavef Vísis.
Sigurður Atli Jónsson hætti fyrr í dag störfum hjá Kviku, eftir að hafa tilkynnt stjórn um þá ákvörðun sína.
Ármann hefur starfað hjá verðbréfafyrirtækinu Virðingu undanfarin tvö ár, síðast sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar, en hætti þar störfum í dag. Marinó Örn Tryggvason, hefur starfað innan eignastýringar Arion banka, verður aðstoðarforstjóri Ármanns, að því er fram kemur í umfjöllun Vísis.
Á árinu 2016 nam hagnaður Kviku um tveimur milljörðum króna og arðsemi eigin fjár var 34,7 prósent. Hagnaður Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Kaupþings Singer & Friedlander í Bretlandi, mun taka við Sigurði Atla Jónssyni sem forstjóri Kviku fjárfestingabanka, samkvæmt heimildum Vísis. Greint var frá því fyrr í dag að Sigurður Atli hefði tilkynnt stjórn bankans að hann hefði ákveðið að láta af störfum.
Ármann hefur starfað hjá verðbréfafyrirtækinu Virðingu undanfarin tvö ár, síðast sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar, en hætti þar störfum í dag, samkvæmt öruggum heimildum Vísis. Þá mun Marinó Örn Tryggvason, sem hefur verið forstöðumaður eignastýringar fagfjárfesta í Arion banka, koma yfir til Kviku og verða aðstoðarforstjóri bankans.
Kvika banki varð til eftir sameiningu MP banka og Straums fjárfestingabanka sumarið 2015. Á árinu 2016 nam hagnaður Kviku um tveimur milljörðum króna og arðsemi eigin fjár var 34,7 prósent.
Kvika og Virðing áttu í sameingarviðræður fyrr á þessu ári sem sigldu í strand í mars mánuði.