Ekkert gefið upp um sölu á hlut Glitnis í Stoðum

Forstjóri Glitnis HoldCo var ekki tilbúinn að svara spurningum um sölu á hlut félagsins í Stoðum.

Hópur íslenskra fjárfesta hefur keypt hlut Glitnis í Stoðum.
Hópur íslenskra fjárfesta hefur keypt hlut Glitnis í Stoðum.
Auglýsing

Ingólfur Hauks­son, for­stjóri Glitnis HoldCo, seg­ist ekki geta tjáð sig um það á hvaða verði Glitnir seldi hlut sinn í Stoð­um, eða yfir­höfuð um við­skipt­in. 

Þetta kemur fram í svari hans við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. Eins og greint var frá í Mark­aðnum fyrr í vik­unni þá hefur hópur íslenskra fjár­festa keypt ríf­lega helm­ings­hlut í Stoðum af Glitni og erlendum eig­endum í eig­enda­hópi félags­ins. 

Eins og greint var frá á vef Kjarn­ans í gær þá er félag­ið PAI Partners SAS, sem er fjár­­­fest­inga­­fé­lag sem ein­blínir á Evr­­ópu­­mark­að, sagt vera að und­ir­­búa yfir­­­tökutil­­boð í hol­­lenska drykkju­vöru­fram­­leið­and­ann Refresco sem íslenska félagið Stoðir hf., áður FL Group, á ennþá 8,8 pró­­sent hlut í. 

Auglýsing

Fyrr í mán­uð­inum var til­­­boði þess upp á 1,4 millj­­arða evra neit­að, en sam­­kvæmt umfjöllun Bloomberg gæti end­­ur­nýjað til­­­boð hljóðað upp á 1,62 millj­­arða evra, eða sem nemur um 182 millj­­örðum króna. 

Miðað við það verð er 8,8 pró­­sent hlutur 16,3 millj­­arða króna virð­i. ­Sam­­kvæmt árs­­reikn­ingi félags­­ins fyrir síð­­asta ár, sem lagður var fram á aðal­­fundi 21. apríl síð­­ast­lið­inn, var hlutur Stoða met­inn á tæp­­lega 13 millj­­arða. 

Refresco er skráð á markað í Hollandi og hefur átt góðu gengi að fagna á markaði. Það hefur meðal annars stigiði fyrstu skrefin inn á Bandaríkjamarkað.

Auk TM sam­anstendur kaup­enda­hóp­­ur­inn af félögum á vegum Jóns Sig­­urðs­­son­­ar, fyrr­ver­andi for­­stjóra FL Group, Ein­­ari Erni Ólafs­­syni, fyrr­ver­andi for­­stjóra Skelj­ungs, Örv­­ari Kjærne­­sted, fjár­­­festi og stjórn­­­ar­­manni í TM, og Magn­úsi Ármanni Jóns­­syni, fjár­­­festi og fyrr­ver­andi stjórn­­­ar­­manni í FL Group. Jón hefur setið í stjórn Refresco frá árinu 2009 og þekkir því félagið vel.

Refresco er skráð á markað í Hollandi og er mark­aðs­verð þess, miðað við lokun mark­aða í gær, 1,44 millj­­arðar evra, um 167 millj­­arðar króna.

Fyr­ir­spurn Kjarn­ans, vegna þess­ara við­skipta, til for­stjóra Glitnis HoldCo var svohljóð­and­i: Hvenær seldi Glitnir hlut sinn í Stoð­um, og á hvað var hlut­ur­inn seld­ur?

Svar Ing­ólfs Hauks­sonar var svona: „Ég geri ráð fyrir að það komi ekki á óvart að Glitnir getur ekki tjáð sig um sölu á ein­stökum eignum félags­ins, hvorki hvort til­tekin eign hafi verið seld eða á hvaða verð­i.“

Íslensku bank­arnir þrír, Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn, eiga sam­tals um 32 pró­sent hlut í Stoð­um. Sam­kvæmt síð­asta árs­reikn­ingi átti Credit Suisse bank­inn 8,4 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu og JP Morgan 7,3 pró­sent. 

Á aðal­fund­inum 21. apríl tók ný stjórn við, en í henni sitja Jón Sig­urðs­son, Iða Brá Bene­dikts­dótt­ir, frá fyr­ir­tækja­sviði Arion banka, og Örva Kjærne­sted. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None