Bráðabirgðaákvæði í stjórnarskránni, sem kvað á um að auðveldara væri að breyta stjórnarskránni en venjulega, rann út í gær, 30. apríl 2017. Ákvæðið var samþykkt sem málamiðlun í stjórnarskrárbreytingum á Alþingi í júlí árið 2013. Með bráðabirgðaákvæðinu gafst tæplega fjögurra ára frestur til þess að breyta stjórnarskránni án þess að þurfa að rjúfa þing og boða til nýrra kosninga.
Bráðabirgðaákvæðið var sett fram sem málamiðlun og til þess að ná sem víðtækastri sátt á Alþingi um framhald og lyktir endurskoðunarinnar á stjórnarskránni, sem stóð á árunum eftir hrun og varð að nýrri stjórnarskrá stjórnlagaráðs. Haldin var þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs, þar sem tillögurnar voru samþykktar.
Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, var formaður stjórnlagaráðs. Hún segir í samtali við RÚV í dag að henni þyki leitt og sárt að sjá hvernig málið hafi farið á undanförnum árum. „Og í raun hafa tvö kjörtímabil liðið og það þriðja er hafið án þess að nokkrar breytingar hafi verið gerðar og það er sárt að sjá hvað það hafi verið mikil átök og að það hafi ekki verið hægt að þoka málinu áfram.“
Hún segir að góðir möguleikar hafi verið á því að gera breytingar og virkja almenning betur. „Auðvitað vissi maður að það voru deilur um málið þegar við vorum að vinna vinnuna en mér finnst það hafa verið ótrúlega erfitt að sjá það lenda í þessum miklu skotgröfum vegna þess að það voru möguleikar á því að gera ýmsar breytingar og það hefði verið hægt að nýta þessa hugsun og hugmynd um að virkja almenning miklu betur í gegnum allt ferlið og það finnst mér bara sárt að sjá þegar allur þessi tími er liðinn.“
Þegar ljóst var undir lok kjörtímabilsins 2009 til 2013 að ekki myndi takast að koma stjórnarskrárbreytingum í gegn fyrir kosningar var tillagan um bráðabirgðaákvæðið flutt. Í henni kom fram að „samþykki Alþingi frumvarp til laga um breytingu á stjórnarskrá með minnst 3/5 hlutum greiddra atkvæða skal það borið undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar.“ Ef frumvarpið væri samþykkt með 3/5 hlutum greiddra atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslunni ætti forsetinn að staðfesta frumvarpið innan tveggja vikna og þar með yrði það orðið að gildum stjórnarskipunarlögum.
Þannig var komist hjá því að rjúfa þyrfti þing til að breyta stjórnarskránni, en í staðinn var kveðið á um aukinn meirihluta bæði á þingi og meðal þjóðarinnar. Samhliða þessu var flutt þingsályktunartillaga um að Alþingi fæli fimm manna nefnd að vinna áfram að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar.
Þessi tillaga var lögð fram í tvígang og var samþykkt eftir að ný ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafði tekið við völdum eftir kosningarnar 2013. Síðan þá hefur verið unnið að stjórnarskrárbreytingum í stjórnarskrárnefnd, og Sigurður Ingi Jóhannsson lagði fram breytingartillögur að stjórnarskránni í fyrra, þegar hann var forsætisráðherra. Ekkert hefur hins vegar orðið af breytingunum, og nú mun fresturinn til að gera breytingar með þessum hætti renna út á sunnudag án þess að svo verði.