Sárt að sjá hvernig fór fyrir stjórnarskrármálum

Salvör Nordal segir sárt að sjá hversu mikil átök voru um stjórnarskrármál. Í gær rann út frestur til þess að breyta stjórnarskránni með auðveldari hætti.

7DM_6057_raw_0355.JPG
Auglýsing

Bráða­birgða­á­­kvæði í stjórn­­­ar­­skránni, sem kvað á um að auð­veld­­ara væri að breyta stjórn­­­ar­­skránni en venju­­lega, rann út í gær, 30. apríl 2017. Ákvæðið var sam­­þykkt sem mála­miðlun í stjórn­­­ar­­skrár­breyt­ingum á Alþingi í júlí árið 2013. Með bráða­birgða­á­­kvæð­inu gafst tæp­­lega fjög­­urra ára frestur til þess að breyta stjórn­­­ar­­skránni án þess að þurfa að rjúfa þing og boða til nýrra kosn­­inga. 

Bráða­birgða­á­­kvæðið var sett fram sem mála­miðlun og til þess að ná sem víð­tæk­astri sátt á Alþingi um fram­hald og lyktir end­­ur­­skoð­un­­ar­innar á stjórn­­­ar­­skránni, sem stóð á árunum eftir hrun og varð að nýrri stjórn­­­ar­­skrá stjórn­­laga­ráðs. Haldin var þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðsla um til­­lögur stjórn­­laga­ráðs, þar sem til­­lög­­urnar voru sam­­þykkt­­ar. 

Sal­vör Nor­dal, for­stöðu­maður Sið­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands, var for­maður stjórn­laga­ráðs. Hún segir í sam­tali við RÚV í dag að henni þyki leitt og sárt að sjá hvernig málið hafi farið á und­an­förnum árum. „Og í raun hafa tvö kjör­tíma­bil liðið og það þriðja er hafið án þess að nokkrar breyt­ingar hafi verið gerðar og það er sárt að sjá hvað það hafi verið mikil átök og að það hafi ekki verið hægt að þoka mál­inu áfram.“

Auglýsing

Hún segir að góðir mögu­leikar hafi verið á því að gera breyt­ingar og virkja almenn­ing bet­ur. „Auð­vitað vissi maður að það voru deilur um málið þegar við vorum að vinna vinn­una en mér finnst það hafa verið ótrú­lega erfitt að sjá það lenda í þessum miklu skot­gröfum vegna þess að það voru mögu­leikar á því að gera ýmsar breyt­ingar og það hefði verið hægt að nýta þessa hugsun og hug­mynd um að virkja almenn­ing miklu betur í gegnum allt ferlið og það finnst mér bara sárt að sjá þegar allur þessi tími er lið­inn.“

Þegar ljóst var undir lok kjör­­tíma­bils­ins 2009 til 2013 að ekki myndi takast að koma stjórn­­­ar­­skrár­breyt­ingum í gegn fyrir kosn­­ingar var til­­lagan um bráða­birgða­á­­kvæðið flutt. Í henni kom fram að „sam­­þykki Alþingi frum­varp til laga um breyt­ingu á stjórn­­­ar­­skrá með minnst 3/5 hlutum greiddra atkvæða skal það borið undir atkvæði allra kosn­­ing­­ar­­bærra manna í land­inu til sam­­þykktar eða synj­un­­ar.“ Ef frum­varpið væri sam­­þykkt með 3/5 hlutum greiddra atkvæða í þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðsl­unni ætti for­­set­inn að stað­­festa frum­varpið innan tveggja vikna og þar með yrði það orðið að gildum stjórn­­­ar­­skip­un­­ar­lög­­um. 

Þannig var kom­ist hjá því að rjúfa þyrfti þing til að breyta stjórn­­­ar­­skránni, en í stað­inn var kveðið á um auk­inn meiri­hluta bæði á þingi og meðal þjóð­­ar­inn­­ar. Sam­hliða þessu var flutt þings­á­­lykt­un­­ar­til­laga um að Alþingi fæli fimm manna nefnd að vinna áfram að heild­­ar­end­­ur­­skoðun stjórn­­­ar­­skrár­inn­­ar. 

Þessi til­­laga var lögð fram í tvígang og var sam­­þykkt eftir að ný rík­­is­­stjórn Fram­­sókn­­ar­­flokks og Sjálf­­stæð­is­­flokks hafði tekið við völdum eftir kosn­­ing­­arnar 2013. Síðan þá hefur verið unnið að stjórn­­­ar­­skrár­breyt­ingum í stjórn­­­ar­­skrár­­nefnd, og Sig­­urður Ingi Jóhanns­­son lagði fram breyt­ing­­ar­til­lögur að stjórn­­­ar­­skránni í fyrra, þegar hann var for­­sæt­is­ráð­herra. Ekk­ert hefur hins vegar orðið af breyt­ing­un­um, og nú mun frest­­ur­inn til að gera breyt­ingar með þessum hætti renna út á sunn­u­dag án þess að svo verð­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None