Benedikt: Vextina ætti að lækka „myndarlega“ núna í maí

Fjármála- og efnahagsráðherra gerir upp fyrsta tímabilið í ríkisstjórn í pistli á heimasíðu sinni.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Auglýsing

„Ég segi Seðla­bank­anum auð­vitað ekki fyrir verk­um, en ég get sagt mína skoð­un. Nefndin ætti að taka á sig rögg núna í maí og lækka vext­ina mynd­ar­lega. Hún getur alltaf hækkað þá aftur næst, ef henni finnst við­brögð hag­kerf­is­ins of ofsa­feng­in.“ 

Þetta segir Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Við­reisn­ar, í pistli á vef­síðu Við­reisnar þar sem hann gerir upp fyrstu 111 dag­ana í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíð­ar. 

Meg­in­vextir Seðla­banka Íslands er nú 5 pró­sent en verð­bólga mælist 1,9 pró­sent. Hún hefur verið undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans í meira en þrjú ár.

Auglýsing

Í pistl­inum gerir hann meðal ann­ars stöðu efna­hags­mála að umtals­efni sem hann segir vera góða, en spennan á mark­aðnum sé þó aug­ljós. „Öllum aðgerðum fylgir áhætta, spennan er mikil á mark­aði og vaxta­lækkun þyrfti að fylgja dempun á útlánum með öðrum ráðum, til dæmis lækkun á veð­hlut­föll­um, þannig að vaxta­lækk­unin færi ekki beint í hærra hús­næð­is­verð. Líf­eyr­is­sjóð­irnir sæju sér eflaust meiri hag í því að færa hluta af sínum fjár­fest­ingum til útlanda. Burt­séð frá öllu öðru er það líka nauð­syn­legt því að hag­kerfið rúmar þá varla lengur með allt sitt fjár­magn,“ segir Bene­dikt. 

Hann segir marga hafa gert sér vonir um að helstu bar­áttu­mál Við­reisn­ar, eins og mark­aðs­leið í sjáv­ar­út­vegi og meiri áherslu á Evr­ópu­mál. Hins vegar sé Við­reisn ekki í hreinum meiri­hluta og því þurfi að horfa á málin með þeim hætti, þar sem semja þurfti um helstu ágrein­ings­mál­in. 

Hann segir stjórn­völd hafa gert margt til að sporna við erf­ið­leikum sem geta mynd­ast vegna sterks gengis krón­unn­ar. „Hvað koma háir vextir og hátt gengi krón­unnar 111 dög­unum við? Jú, þetta tvennt er það eina sem ég hef haft áhyggjur af þessa daga frá því í jan­ú­ar. Auð­vitað hefur margt annað komið upp, en það eru við­fangs­efni sem hægt er að glíma við með ein­hverju móti, en gengið er eins og ham­farir sem fjár­mála­ráð­herra fær ekk­ert við ráð­ið. Víst hefur rík­is­stjórnin gert margt sem  í hennar valdi stendur til þess að sporna við geng­is­styrk­ingu á þessum 111 dög­um: Við höfum aflétt höft­um, borgað niður erlendar skuld­ir, boðað skatta­hækkun á erlenda ferða­menn, hvatt líf­eyr­is­sjóði til þess að flytja fé úr landi og boðað auk­inn afgang á rík­is­fjár­mál­um, en þetta virkar nán­ast eins og skvetta vatni á gæs. Vaxta­tækið er enn ónotað og því ræður Seðla­bank­inn, eða öllu heldur pen­inga­stefnu­nefnd­in. Nefndin á næsta leik,“ segir Bene­dikt.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None