Helgi Bjarnason nýr forstjóri VÍS

Capacent hafði umsjón með ráðningaferlinu á nýjum forstjóra VÍS.

Helgi Bjarnason
Helgi Bjarnason
Auglýsing

Helgi Bjarna­­son hef­ur verið ráð­inn for­­stjóri VÍS. Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu sem VÍS sendi frá sér í gær. Helgi hef­ur gegnt stöðu fram­­kvæmda­­stjóra við­skipta­­banka­sviðs Ari­on banka frá októ­ber 2011 og var áður fram­­kvæmda­­stjóri rekstr­­ar­sviðs Ari­on banka.

Helgi, sem er fædd­ur árið 1969, er með masters gráðu í trygg­inga­­stærð­fræði frá Há­­skól­an­um í Kaup­­manna­höfn og BS-gráðu í stærð­fræði frá Há­­skóla Íslands.

Svan­hildur Nanna Vig­fús­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður VÍS, fagnar ráðn­ingu Helga í til­kynn­ing­u. „Það er mik­ill fengur fyrir VÍS að fá Helga til starfa en hann býr yfir yfir­grips­mik­illi og djúpri þekk­ingu og reynslu af jafnt trygg­inga­mark­aði sem og fjár­mála­mark­aði. Í starfi sínu hjá Arion banka hefur hann m.a. tekið þátt í þróun nýrra staf­rænna lausna en VÍS hefur í nýrri stefnu­mótun lagt aukna áherslu á fram­farir á því sviði. Stjórn VÍS er sann­færð um að undir hans stjórn muni félagið halda áfram að sækja fram sem leið­andi trygg­inga­fé­lag á Ísland­i,“ segir Svan­hildur Nanna í til­kynn­ingu.

Auglýsing

Mark­aðsvirði VÍS er nú 24,2 millj­arðar króna.

Áður en Helgi hóf störf hjá Ari­on banka var hann aðstoð­ar­fram­­kvæmda­­stjóri Sjóvá Al­­menn­ra, auk þess sem hann gegndi stöðu fram­­kvæmda­­stjóra Sjó­vár Al­­mennra líf­­trygg­ing­­ar. Fyr­ir það starf­aði hann sem trygg­inga­­stærð­fræð­ing­ur hjá Alþjóða líf­­trygg­ing­­ar­­fé­lag­inu.

Helgi hef­ur gegnt stjórn­­­ar­­setu í ýms­um fé­lög­um, m.a. í stjórn­­um Sam­­taka at­vinn­u­lífs­ins, Sam­­taka fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja og Fé­lags ís­­lenskra trygg­ing­­ar­­stærð­fræð­inga. Helgi hef­ur gegnt stjórn­­­ar­­for­­mennsku í Verði trygg­ing­um hf. og Verði líf­­trygg­ing­um hf.  „Það er ein­stak­­lega spenn­andi verk­efni að taka við stjórn VÍS í dag en rekst­ur trygg­inga­­fé­laga hef­ur verið að breyt­­ast hratt á und­an­­förn­um árum, meðal ann­­ars með hraðri þróun upp­­lýs­inga­­tækni og nán­­ari teng­ing­um við fjár­­­mála­­mark­að­i,“ er haft eft­ir Helga í frétta­til­kynn­ing­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None