Helgi Bjarnason hefur verið ráðinn forstjóri VÍS. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem VÍS sendi frá sér í gær. Helgi hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Arion banka frá október 2011 og var áður framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Arion banka.
Helgi, sem er fæddur árið 1969, er með masters gráðu í tryggingastærðfræði frá Háskólanum í Kaupmannahöfn og BS-gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands.
Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, stjórnarformaður VÍS, fagnar ráðningu Helga í tilkynningu. „Það er mikill fengur fyrir VÍS að fá Helga til starfa en hann býr yfir yfirgripsmikilli og djúpri þekkingu og reynslu af jafnt tryggingamarkaði sem og fjármálamarkaði. Í starfi sínu hjá Arion banka hefur hann m.a. tekið þátt í þróun nýrra stafrænna lausna en VÍS hefur í nýrri stefnumótun lagt aukna áherslu á framfarir á því sviði. Stjórn VÍS er sannfærð um að undir hans stjórn muni félagið halda áfram að sækja fram sem leiðandi tryggingafélag á Íslandi,“ segir Svanhildur Nanna í tilkynningu.
Markaðsvirði VÍS er nú 24,2 milljarðar króna.
Áður en Helgi hóf störf hjá Arion banka var hann aðstoðarframkvæmdastjóri Sjóvá Almennra, auk þess sem hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra Sjóvár Almennra líftryggingar. Fyrir það starfaði hann sem tryggingastærðfræðingur hjá Alþjóða líftryggingarfélaginu.
Helgi hefur gegnt stjórnarsetu í ýmsum félögum, m.a. í stjórnum Samtaka atvinnulífsins, Samtaka fjármálafyrirtækja og Félags íslenskra tryggingarstærðfræðinga. Helgi hefur gegnt stjórnarformennsku í Verði tryggingum hf. og Verði líftryggingum hf. „Það er einstaklega spennandi verkefni að taka við stjórn VÍS í dag en rekstur tryggingafélaga hefur verið að breytast hratt á undanförnum árum, meðal annars með hraðri þróun upplýsingatækni og nánari tengingum við fjármálamarkaði,“ er haft eftir Helga í fréttatilkynningu.