85 prósent landsmanna ánægðir með Guðna Th. sem forseta

Vinsældir Guðna Th. Jóhannessonar á forsetastóli halda áfram að aukast. Nú segjast einungis 2,8 prósent vera óánægðir með hann.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Auglýsing

Íslend­ingar eru gríð­ar­lega ánægðir með for­set­ann sinn. Alls segj­ast 85 pró­sent aðspurðra í nýrri könnun MMR að þeir séu ánægðir með störf Guðna Th. Jóhann­es­sonar en ein­ungis 2,8 pró­sent eru óánægð­ir. Konur eru ánægð­ari með Guðna Th. en karl­ar. Alls segj­ast 91 pró­sent kvenna ánægðar með for­set­ann en 80 pró­sent karla. Þetta er lang­mesta ánægja sem mælst hefur nokkru sinni með sitj­andi for­seta.

Mest er ánægjan hjá stuðn­ings­fólki Pírata og Vinstri grænna, en á meðal þeirra kváð­ust 95 pró­sent vera ánægð með Guðna.  Minnst er ánægjan hjá stuðn­ings­fólki Fram­sóknar (67 pró­sent ánægð­ir) og Sjálf­stæð­is­flokks­ins (80 pró­sent ánægð­ir).

Könn­unin var fram­kvæmd dag­ana 11. til 26. apríl 2017 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 926 ein­stak­ling­ar, 18 ára og eldri.

Auglýsing

MMR mældi fyrst ánægju með störf for­­setam eftir að Guðni Th. tók við emb­ætt­inu í byrjun sept­­em­ber 2016. Þá mæld­ist ánægja með Guðna Th. 68,6 pró­­sent, sem var mesta ánægja sem mælst hafði á þeim tíma. Síðan hefur bæst veru­­lega í þann hóp sem er ánægður með störf sitj­andi for­­seta. Guðni Th. tók við emb­ætti for­­seta Íslands 1. ágúst síð­­ast­lið­inn. 

Ánægja með störf hans hefur síðan haldið áfram að vaxa og fór yfir 80 pró­sent í febr­úar á þessu ári.

Und­an­farin ár, áður en Guðni Th. tók við emb­ætt­inu, hafa á bil­inu 15-30 pró­­sent sagst vera óánægð með störf Ólafs Ragn­­ars Gríms­­sonar sem for­­seta, en ánægjan með störf hans mæld­ist á bil­inu 45-64 pró­­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None