Seðlabanki Íslands hefur framlengt frest fyrir milligönguaðila til að skila inn tilboðum vegna aflandskróna, og gildi fresturinn nú til 15. júní, samkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands.
Fjöldi áhugasamra náði ekki að ganga frá viðskiptum innan þess tímaramma sem bankinn setti sem var 28. apríl.
Seðlabanki Íslands tilkynnti 12. mars síðastliðinn um kaup á aflandskrónueignum, eins og þær eru skilgreindar í lögum nr. 37/2016, um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum, að fjárhæð um 90 milljarðar króna á genginu 137,5 krónur á evru.
Jafnframt var tilkynnt að bankinn hygðist bjóða þeim eigendum aflandskróna sem ekki áttu aðild að samningunum 12. mars sömu kjör. Það boð var ítrekað 4. apríl sl. með frétt bankans um fyrirkomulag og skilmála. Frestur til þátttöku rann út föstudaginn 28. apríl, eins og áður segir, og er nú verið að fara yfir viðbrögðin.
„Tilboðið nær til erlendra fjármálafyrirtækja, sjóða og viðurkenndra mótaðila sem uppfylla skilyrði um varnir gegn peningaþvætti og aðrar kannanir á áreiðanleika viðskiptamanna gagnvart Clearstream Banking S.A og Euroclear Bank S.A./N.V., sem verða milligönguaðilar Seðlabankans í tilboðinu. Slíkir aðilar geta átt viðskipti hvort sem er fyrir eigin reikning eða fyrir hönd viðskiptavina sinna. Eigendur aflandskróna skulu hafa samband við vörsluaðila viðkomandi eigna vegna viðskipta og uppgjörs en frestur til viðskipta og uppgjör viðskipta getur verið mismunandi eftir vörsluaðilum. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag og skilmála tilboðsins verða birtar á næstu dögum,“ segir í tilkynningu Seðlabanka Íslands.