Yellen: Lausnin er að efla atvinnuþátttöku kvenna

Janet Yellen, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, segir að hagvöxt í Bandaríkjunum megi efla með tiltölulega einfaldri aðgerð.

Janetyellen.jpg
Auglýsing

Ef konur væru jafn virkar á banda­rískum vinnu­mark­aði og karlar þá væri banda­ríska hag­kerfið í það minnsta fimm pró­sent stærra. Þetta er eitt af því sem rann­sókn frá 2012, sem Janet Yellen seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna vann, leiddi í ljósi. 



Í ræðu sem hún hélt í dag við Brown háskóla í New York, í til­efni af því að 125 ár eru síðan háskól­inn hóf að taka inn konur sem nem­endur, sagði hún að banda­rískt sam­fé­lag hefði mikla hags­muni af því að virkja kraft og þekk­ingu kvenna. „Við, sem þjóð, höfum upp­lifað mik­inn ávinn­ing af því vax­andi hlut­verki sem konur hafa sinnt í banda­rísku efna­hags­lífi [...] Rann­sóknir sýna þó að konur eru enn að upp­lifa mun meiri hindr­an­ir, þegar kemur að fram­gangi á vinnu­mark­aði, heldur en karl­ar.“

Hún lagði áherslu á að það þyrfti betri og ítar­legri stefnu­mörkun af hálfu stjórn­valda, til að virkja konur og gera þeim mögu­legt að byggja upp eðli­legan feril í fullri vinnu. Yellen lagði enn fremur áherslu á það að Banda­ríkin væru að drag­ast aftur úr öðrum þró­uðum ríkj­um, t.d í Evr­ópu, en Banda­ríkin eru nú í 17. sæti af 22 þró­uðum ríkj­um. Hún sagði að lík­lega myndi atvinnu­þátt­taka kvenna hækka út 74,3 pró­sent í 82 pró­sent ef svipuð stefnu­mörkun færi fram og þegar hefði verið leidd í lög víða í Evr­ópu.

Frá því árið 2000 hefur staðan versn­að, sé sér­stak­lega horft til kvenna á aldr­inum 25 til 54 ára. Atvinnu­þátt­takan hefur farið úr 77,3 pró­sent í 74,3. Þó þetta virð­ist ekki svo mikið bil, þá vegur hvert pró­sentu­stig þungt í þróun sem þess­ari og Yellen sagði í ræðu sinni að það væri mikið áhyggju­efni að staðan væri að versna.

Auglýsing

Hag­vöxtur í Banda­ríkj­unum mæld­ist 0,7 pró­sent á fyrstu mán­uðum árs­ins, sem er það minnsta síðan 2014. Flestar spár gerðu ráð fyrir meiri hag­vexti, en Don­ald Trump, Banda­ríkja­for­seti, hefur lofað því að koma hag­vexti í 4 pró­sent strax á þessu ári. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None