Gengið hefur verið frá skipan nefndar til að móta tillögur um hvernig tryggja megi sanngjarna gjaldtöku fyrir afnot af fiskveiðiauðlindinni. Formaður nefndarinnar er Þorsteinn Pálsson sem skipaður er af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Þorsteinn gegndi embætti sjávarútvegsráðherra í átta ár frá 1991-1999. Nefndin er að öðru leyti skipuð samkvæmt tilnefningum allra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi. Nefndin skal skila tillögum sínum til ráðherra í formi lagafrumvarps eigi síðar en 1. desember á þessu ári. „Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að unnið verði að mati á þeim kostum sem tækir eru til gjaldtöku fyrir afnot sjávarauðlindarinnar, svo sem markaðstengingu, sérstöku afkomutengdu gjaldi eða öðrum leiðum, í því skyni m.a. að tryggja betur að gjald fyrir aðgang að sameiginlegri auðlind verði í eðlilegu hlutfalli við afrakstur veiðanna. Markmiðið er að tillögur nefndarinnar geti orðið grundvöllur að þverpólitískri og víðtækri sátt í samfélaginu um sjávarútveginn og þar með grunnur að auknum stöðugleika í starfsumhverfi hans og tengdra greina til framtíðar,“ segir í tilkynningunni.
Eftirtaldir sitja í nefndinni:
· Hanna Katrín Friðriksson - fyrir Viðreisn
· Logi Einarsson - fyrir Samfylkingu
· Mörður Ingólfsson - fyrir Pírata
· Páll Pálsson - fyrir Framsóknarflokk
· Svandís Svavarsdóttir - fyrir VG
· Teitur Björn Einarsson - fyrir Sjálfstæðisflokk
· Theodóra S. Þorsteinsdóttir - fyrir Bjarta framtíð
· Þorsteinn Pálsson, formaður