„Með fullri virðingu, þá ertu að gera mikil mistök“

Leiðtogi Demókrata í Bandaríkjaþingi varaði Bandaríkjaforseta við því að reka yfirmann FBI.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Auglýsing

Leið­togi demó­krata á Banda­­ríkja­þingi, Chuck Schumer, fékk hring­ingu frá Don­ald J. Trump, Banda­ríkja­for­seta, þar sem for­set­inn tjóði honum að hann væri að fara reka James Comey sem for­stjóra alrík­is­lög­regl­unnar FBI. Ákvörð­unin kemur á sama tíma og FBI er með rann­sókn í gangi vegna tengsla fram­boðs Trumps við Rússa, í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í fyrra. 

Á meðal þeirra sem eru til rann­sóknar eru Mich­ael Flynn, sem var rek­inn sem aðal­þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi eftir tæp­lega 20 daga í starfi, og Jeff Sessions dóms­mála­ráð­herra. Hann hitti Sergey Kis­lyak, sendi­herra Rússa í Was­hington, í tvígang á fundum í aðdrag­anda kosn­ing­anna, en eið­svar­inn sagði hann Banda­ríkja­þingi að hann hefði ekki verið í neinum sam­skiptum við Rússa. 

Schumer seg­ist hafa tjáð Don­ald Trump Banda­­ríkja­­for­­seta að það væru mik­il mis­­tök að víkja James Comey, for­­stjóra al­­rík­­is­lög­regl­unn­ar FBI, frá störf­um á meðan rann­­sókn stæði yfir á mein­t­um af­­skipt­um Rússa í for­­seta­­kosn­­ing­un­um á síð­asta ári.

Auglýsing

„Fyrr í dag hringdi Trump for­­seti í mig og upp­­lýsti mig um að hann væri að fara að víkja Comey frá störf­­um. Ég sagði við for­­set­ann, „­með fullri virð­ingu, þá ertu að gera stór mis­­tök,“ sagði Schumer á blaða­manna­fundi.

Þá tók hann und­ir ákall fleiri flokks­­manna sinna um að sjálf­­stæður og sér­­stak­ur sak­­sókn­­ari eða nefnd rann­saki mög­u­­leg sam­ráð kosn­­inga­fram­­boðs Trumps og rús­s­­neskra emb­ætt­is­­manna. Það ákall hefur bæði komið frá Demókrötum og Repúblikön­um. 

Hin opin­bera ástæða þess að Comey var rek­inn var sú að hann hefði höndlað rann­sókn­ina á tölvu­póstum Hill­ary Clinton illa, og tjáð sig um málið með óvið­eig­andi hætti á meðan málið væri enn í rann­sókn. Í bréfi sem aðstoð­ar­ráð­herra dóms­mála, Rod Ros­en­stein, skrif­aði, þar sem rök eru færð fram fyrir því að Comey verði rek­inn, kemur fram að hann hefði farið út fyrir starfs­svið sitt með ótíma­bærum yfir­lýs­ingum

Það var Jeff Sessions dóms­mála­ráð­herra - sem nú er til rann­sóknar vegna sam­bands hans við Rússa - sem lagði til við Trump að Comey yrði rek­inn strax, og nýr yfir­maður FBI ráð­inn eins fljótt og kostur væri. Ekki liggur fyrir enn hver það verð­ur.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent