Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, hefur ákveðið að stíga til hliðar sem þingflokksformaður flokksins. Frá þessu greinir hún á Facebook-síðu sinni.
„Í ljósi ágreinings milli mín og meirihluta þingflokks Pírata varðandi innra skipulag þingflokksins hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem þingflokksformaður Pírata,“ skrifar Ásta Guðrún. Hún segir þingmennina hafa ólíka sýn á hvert þingflokkurinn ætti að stefna og því haldi hún að það sé farsælast að annar taki við starfinu. Ágreiningurinn hafi í stuttu máli falist í innra skipulagi og verksviði þingflokksformannsins, en hún segir málið enn í ferli og því geti hún ekki tjáð sig nánar um það.
„Hlakka til að gerast óbreyttur þingmaður á ný, en þá gefst meiri tími til að vinna að þeim málefnum sem eru mér hugleikin,“ skrifar hún að lokum.