Skeljungur hf. og hluthafar Basko ehf. hafa sammælst um að hefja samningaviðræður um kaup Skeljungs á öllu hlutafé í Basko, á grundvelli samkomulags um helstu samningsskilmála. Kaupverðið er 2,8 milljarðar króna, með yfirtöku skulda, og greitt með hlutabréfum í Skeljungi.
Tilkynning um þetta hefur verið send til kauphallar.
Kaupin eru háð ýmsum forsendum og fyrirvörum beggja samningsaðila, að því er segir í tilkynningu. Markaðsvirði Skeljungs er nú 13,3 milljarðar, og því er um hlutfallslega stóra viðbót að ræða í rekstur félagsins.
Orðrétt segir í tilkynningunni: „Basko fer með eignarhald á Rekstrarfélagi Tíu Ellefu ehf., Ísland Verslun hf. og Imtex ehf. Rekstrarfélag Tíu Ellefu ehf. rekur samtals 35 þægindavöruverslanir undir merkjum 10-11 og Háskólabúðarinnar og er einnig móðurfélag Drangaskers ehf. sem rekur fimm kaffihús undir merkjum Dunkin Donuts. Félagið rekur einnig eina Inspired by Iceland verslun og veitingastaðinn Bad Boys Burgers & Grill. Ísland Verslun hf. rekur þrjár verslanir undir merkjum Iceland. Heildartekjur samstæðunnar á síðasta fjárhagsári námu 10.039 m.kr., heildareignir 2.360 m.kr. og rekstrarhagnaður án afskrifta og fjármagnsliða (EBITDA) nam 309 m.kr.
Forsendur um kaupverð eru grundvallaðar á upplýsingum seljanda og þeim forsendum að EBITDA hins keypta, geti numið um 500 m.kr. á ársgrundvelli, þegar samlegðaráhrif félaganna yrðu að fullu komin fram. Áætlað er að það geti verið innan 24 mánaða frá því að kaupin eru gengin í gegn.
Kaupverð miðað við framangreindar forsendur væri allt að 2,2 milljarðar króna, greitt að fullu með 318,840,580 hlutum í Skeljungi hf. Miðað er við nettó vaxtaberandi skuldir að fjárhæð 657 milljónir króna, sem getur þó tekið breytingum. Við útreikning á fjölda hluta er miðað við gengið 6,9 á hlut. Dagslokagengi Skeljungs hf. þann 19. maí 2017 var 6,35. Seljendur skuldbinda sig til að framselja ekki þá hluti sem þeir fá afhenta í 18 mánuði frá afhendingu.
Framangreint kaupverð er háð ýmsum forsendum, þar á meðal að áætlaður rekstrarhagnaður og horfur í rekstri byggi á forsendum sem eru ásættanlegar að mati kaupanda eftir framkvæmd áreiðanleikakönnunar.
Komi til gerðar kaupsamnings, verður sá samningur gerður með fyrirvara um samþykki hluthafafundar fyrir aukningu hlutafjár og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Nánar verður gert grein fyrir viðskiptunum ef endanlegur kaupsamningur kemst á og ef viðræður aðila falla niður. Gangi viðskiptin eftir má gera ráð fyrir að gengið verði endanlega frá kaupum fyrir árslok 2017.“
Valgeir M. Baldursson, forstjóri Skeljungs, segir að kaupin muni styrkja rekstur Skeljungs. „Árið 2014 samdi Skeljungur við Basko um rekstur verslana á helstu bensínstöðvum félagsins. Það hefur gengið vonum framar og á grunni þeirra reynslu stígur félagið nú skrefið til fulls með kaupum á félaginu, með fulla samþættingu á eldsneytissölu, sölu á endurnýjanlegum orkugjöfum og verslun fyrir augum. Með kaupunum stígur Skeljungur jafnframt mikilvæg skref í frekari þróun í smásölu, sem m.a. felst í að mæta betur breytingum á kaupmynstri fólks - og sívaxandi tækifærum í sölu og þjónustu til ferðamanna, þar sem 10-11 hefur þegar sterka stöðu. Samhliða þessu hyggst félagið jafnframt leita tækifæra til að styrkja sölu- og þjónustunet sitt um allt land. Með kaupunum myndi Skeljungur eignast eitt öflugasta þægindaverslanafyrirtæki landsins, en stjórnendur félagsins hafa áralanga reynslu í uppbyggingu og rekstri smásöluverslana. Heildarfjöldi starfsmanna sameinaðs félags yrði rúmlega 400 manns,“ segir Valgeir.