Vilja auka lóðaframboð, forgangsraða fyrir vegakerfið og auka einkarekstur skóla

Áherslur Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar sem fara fram eftir ár liggja fyrir. Flokkurinn samþykkti þær á málefnaþingi um helgina. Hann vill hverfa frá „gæluverkefnum“ núverandi meirihluta. Kosningabarátta flokksins er hafin.

Halldór Halldórsson er oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík sem stendur.
Halldór Halldórsson er oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík sem stendur.
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­menn vilja auka fram­boð á lóð­um, leggja niður bygg­inga­rétt­ar­gjald, for­gangs­raða í þágu við­halds og upp­bygg­ingar á vega­kerfi Reykja­víkur í stað gælu­verk­efna, fjölga val­kostum í rekstr­ar­formi skóla og lækka útsvar. Þetta eru megin álykt­anir sem sam­þykktar voru á mál­efna­þingi flokks­ins sem haldið var í Val­höll um helg­ina. Mál­þingið mark­aði upp­haf kosn­inga­bar­áttu Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar sem fram fara 26. maí 2018, eða eftir rúmt ár.

Flokk­ur­inn hefur gengið í gegnum mikið hnign­un­ar­tíma­bil í borg­inni á und­an­förnum árum eftir að hafa oft verið með um og yfir 50 pró­sent fylgi þar ára­tugum sam­an. Í kosn­ing­unum 2010 fékk flokk­ur­inn 33 pró­sent og í síð­ustu kosn­ing­um, sem fram fóru 2014, fékk hann 25,7 pró­sent. Borg­ar­stjórn­ar­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins situr nú í minni­hluta í borg­ar­stjórn ásamt Fram­sókn og flug­vall­ar­vin­um. Hall­dór Hall­dórs­son var leiddi flokk­inn í gegnum síð­ustu kosn­ingar og er odd­viti hans í borg­ar­stjórn. Við­mæl­endur Kjarn­ans innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins segja að mik­ill vilji sé til þess að bjóða fram nýja ein­stak­linga í for­ystu flokks­ins í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um.

Sam­göng­ur, vega­kerfi og rekstr­ar­form skóla

Sam­kvæmt til­kynn­ingu sóttu um 250 manns mál­þing­ið. Ýmsir framá­menn í flokknum ávörp­uðu það. Þeir sem fluttu sér­stök ávörp voru Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Hall­dór Hall­dórs­son, odd­viti flokks­ins í Reykja­vík, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, Gísli Kr. Björns­son, for­maður full­trúa­ráðs­ins Varð­ar, og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, rit­ari flokks­ins.

Auglýsing



Unnið var að stefnu­mótun í sex mál­efna­nefndum og afrakstur hennar verður grund­völlur að stefnu flokks­ins í kom­andi kosn­ing­um. Skipu­lags­mál eru fyr­ir­ferða­mikil í þeirri stefnu. Í ályktun Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að skipu­lags­mál séu ekki kort og töl­ur, þau snú­ist um lífið sjálft. „Sjálf­stæð­is­menn vilja tryggja að ávallt sé nægj­an­legt fram­boð af lóðum til sölu og að bygg­ing­ar­rétt­ar­gjald verði fellt nið­ur. Þannig verði tryggt að lóðir í nýbygg­ing­ar­hverfum séu seldar á kostn­að­ar­verð­i.“

Þá segir flokk­ur­inn að fram­tíð­ar­bygg­ing­ar­land Reykja­víkur til norð­urs og aust­urs hafi ekki verið opnað með stofn­braut­um, sem hafi valdið umferð­artöfum og stuðlað að hækk­andi fast­eigna­verði. „Þá kemur fram að öryggi í umferð­ar­málum hafi vikið fyrir gælu­verk­efnum undir stjórn núver­andi meiri­hluta. Nauð­syn­legt sé að for­gangs­raða í þágu við­halds og upp­bygg­ingar á vega­kerfi höf­uð­borg­ar­innar með öryggi að leið­ar­ljósi.“

Í skóla­málum vilja Sjálf­stæð­is­menn „auka fjöl­breytni í skóla­starfi og fjölga val­kostum í náms­leiðum og rekstr­ar­formi skóla.“  Meta þurfi hvort skóli án aðgrein­ingar hafi skilað til­ætl­uðum árangri og hvaða áhrif sú stefna hafi haft á kenn­ara, nem­endur og for­eldra þeirra. „Áhersla verði færð frá mið­stýr­ingu í átt  að auknu sjálf­stæði og sveigj­an­leika í skóla­starfi. Þá er lagt til að fjár­magn til náms fylgi hverjum nem­anda og að stjórn­endur hafi svig­rúm til að stýra skólum sínum með ólíkum áhersl­um. Þannig verði fjöl­breytni í skóla­starfi aukin og val­kostum fjölg­að.“

Að venju leggur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn til að útsvar, verði lækkað en það er nú eins hátt og leyfi­legt er í Reykja­vík. „Mark­mið til lengri tíma er sam­kvæmt ályktun þings­ins að útsvarið fari í lög­bundið lág­mark. Mik­il­vægt sé að sýna ráð­deild í rekstri borg­ar­innar og hverfa frá þeim lausa­tökum sem við­geng­ist hafa í tíð núver­andi meiri­hluta.“

Þá lýsir Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sig andsnú­inn því að borg­ar­full­trúum verði fjölgað úr 15 í að minnsta kosti 23 við næstu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent