Píratar segja fjármálaráðherra styðjast við ófullnægjandi gögn

Þingflokkur Pírata gagnrýnir fjármálaáætlun fjármálaáætlun og segir hana byggja á veikum grunni, og eftir standi mörg óútskýrð atriði.

Píratar fá fyrstu tölur
Auglýsing

„Nú hefur feng­ist stað­fest­ing á því sem Píratar ótt­uð­ust allt frá því að fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar var lögð fram; áætlun rík­is­stjórn­ar­innar er í raun bara ágiskun, fjár­munum er skipt niður á mál­efna­svið ráðu­neyta að því er virð­ist handa­hófs­kennt.“



Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Píröt­um.  Í henni er fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2018 til 2022, sem Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur lagt fram,  harð­lega gagn­rýnd. 
„Með þessu er verið að biðja Alþingi um að taka ákvörðun án þess að hafa for­send­urn­ar. Á nýaf­stöðnum fundi full­trúa Pírata í fjár­laga­nefnd með for­manni fjár­laga­nefndar og full­trúum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins kom fram að ekki væri hægt að svara upp­lýs­inga­beiðni Pírata um tölur og gögn er liggja að baki fjár­mála­á­ætl­un­inn­i. Ástæðan er ein­föld: Þessi gögn eru ekki til,“ segir í til­kynn­ingu Pírata. 

Í fjár­mála­á­ætl­un­inni er meðal ann­ars horft til þess að hækka virð­is­auka­skatt á ferða­þjón­ustu, frá og með 1. júlí á næsta ári, úr 11 pró­sent í 22,5 pró­sent. Ekki er víst að meiri­hluta­stuðn­ingur verði við það á þingi, meðal ann­ars vegna and­stöðu í hópi Sjálf­stæð­is­manna. Áætl­unin markar ramma opin­berra fjár­mála, horft til fimm ára, og hefur Bene­dikt sagt að ein­blínt verði á að borga niður skuldir rík­is­ins og for­gangs­raða með almanna­hags­muni að leið­ar­ljósi. Ferða­­­þjón­usta hefur vaxið mikið á und­an­­­förnum árum. Hún hefur á þró­un­­­ar­­­skeiði sínu notið þess að vera í lægra skatt­­­þrepi virð­is­auka­skatts. Skatta­hag­ræði vegna þessa hefur verið metið um 16 millj­­­arðar króna ef litið er á gist­ingu, fólks­­­flutn­inga og afþr­ey­ingu, en auk þess milli fimm og sex millj­­­arðar króna í veit­inga­­­rekstri. Nú þegar greinin er orðin stærsta gjald­eyr­is­aflandi grein lands­ins og vex um tugi pró­­­senta á hverju ári er eðli­­­legt að virð­is­auka­skattur sé sá sami í grein­inni og í öðrum geir­um,“ sagði Bene­dikt meðal ann­ars í ítar­legri grein um fjár­mála­á­ætl­un­ina á vef Kjarn­ans.



Píratar segja í til­kynn­ingu sinni, að ekki sé hægt að sam­þykkja fjár­mála­á­ætlun þar sem ekki hefur verið lögð fram grein­ing á fjár­þörf stofn­ana. „
Tak­mörkuð grein­ing á ein­staka útgjalda­liðum eða fjár­þörf ein­stakra stofn­ana eða verk­efna liggur fyr­ir. Það má því leggja þessi vinnu­brögð að jöfnu við að fjár­mála­ráðu­neytið hafi dregið skipt­ingu fjár­muna í fjár­mála­á­ætlun upp úr hatti. Ekk­ert til­lit hefur verið tekið til raun­veru­legrar fjár­þarfar stofn­ana við þessa ágiskun, ófull­nægj­andi gögn liggja fyrir um kostnað ein­stakra verk­efna sem fjár­mála­á­ætlun setur á herðar ein­stakra stofn­ana og er þeim því haldið í óvissu um hvort fjár­munir fáist í þau verk­efni sem þeim hefur verið falið. Lög um opin­ber fjár­mál gera ráð fyrir fag­legri úttekt sem und­ir­stöðu fjár­mála­á­ætl­unar á meðan stjórn­ar­skráin felur lög­gjaf­anum fjár­veit­ing­ar­vald­ið. Fjár­mála­á­ætlun skilur Alþingi eftir í full­kominni óvissu um hvernig fram­kvæmd­ar­valdið hyggst ráð­stafa fjár­munum almenn­ings. Því má leiða líkur að því að fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar stand­ist hvorki lög um opin­ber fjár­mál né stjórn­ar­skrá,“ segir í til­kynn­ing­unni.

 

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent