Pundið komið í 128 krónur

Krónan hefur styrkst töluvert gagnvar helstu viðskiptamyntum að undanförnu. Pólitískur titringur í Bretlandi hefur hins vegar sett pundið í lægstu lægðir.

theresa may forsætisráðherra bretlands
Auglýsing

Pundið kostar nú 128 krónur en gengi krón­unnar hélt áfram að styrkj­ast í dag, en mest þó gagn­vart pund­inu, eða um 1,52 pró­sent. Ástæðan er meðal ann­ars rakin til póli­tísks titr­ings í Bret­landi, en nú stytt­ist í þing­kosn­ingar þar í landi og hafa nýj­ustu kann­anir sýnt að bilið milli Íhalds­flokks Ther­eseu May for­sæt­is­ráð­herra og James Cor­byn for­manns Verk­manna­flokks­ins í Bret­landi, er að minnka. Gengið verður til kosn­ingar 8. júní.



Sam­kvæmt könnun You­Gov er Íhalds­flokk­ur­inn með 43 pró­sent fylgi og Verka­manna­flokk­ur­inn 38 pró­sent. May freistar þess með kosn­ing­unum að fá betra umboð til þess að leiða landið í samn­inga­við­ræðum við Evr­ópu­sam­band­ið, vegna útgöngu Breta úr sam­band­in­u. 





Frá því almenn­ingur í Bret­landi sam­þykkti í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í júní í fyrra, að Bret­land ætti að fara úr Evr­ópu­sam­band­inu, hefur gengi punds­ins fallið veru­lega gagn­vart helstu við­skipta­mynt­um. Breyt­ingin er sér­stak­lega mikil gagn­vart krón­unni, enda hefur gengi hennar verið að fara í þver­öf­uga átt, það er að styrkj­ast á móti helstu við­skipta­mynt­u­m. 



Fyrir einu og hálfu ári kost­aði pundið 206 krónur og breyt­ingin því mikil á skömmum tíma. Þetta hefur mikil áhrif á fjöl­mörg sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki á Íslandi, þar sem stærsti ein­staki mark­aður íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyri­tækja með þorsk er í Bret­land­i. 



Gengi krón­unnar hefur styrkst tölu­vert á þessu ári gagn­vart helstu mynt­um, og er það áfram­hald á þróun sem var allt síð­asta ár. Banda­ríkja­dalur kostar nú 100 krónur en var á 140 krónur fyrir rúm­lega einu og hálfu ári. Evran kostar 112 krónur en var á 150 krónur fyrir rúm­lega einu og hálfu ári. 



Mikið gjald­eyr­is­inn­streymi vegna vaxtar í ferða­þjón­ustu er ein lyk­ilá­stæða þess að krónan hefur styrkst mik­ið, en einnig betri efna­hags­horfur og hratt batn­andi skulda­staða þjóð­ar­bús­ins.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent