Líkir ríkisstjórnarstarfinu við dæmigert eftirpartý

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, sagði stemmninguna í ríkisstjórnarsamstarfinu augljóslega ekki góða. Hún gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir að vera verklitla.

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, gagn­rýndi rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra, fyrir að vera stemmn­ings­lausa og verk­litla, í eld­hús­dags­um­ræðum á Alþingi, sem nú eru hafn­ar. Hún líkti rík­is­stjórn­ar­starf­inu við stöð­una í eft­irpýt­um, þar sem þreytan er alls­ráð­andi. „Þetta var eins og kvöld á barnum þar sem menn hafa kannski vakað heldur lengi í von um enn meiri skemmtun seinna. En svo fóru rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir saman heim í eft­irpartý sem hefur verið í ætt við önnur slík.. Þegar partýið loks­ins hefst hefur þreytan náð yfir­hönd­inni, eng­inn man lengur vænt­ing­arnar frá fyrr í kvöld, fólk syngur kannski þreytu­lega en ekki í takti, sumir eru svo­lítið fúlir með að hafa lent í þessu partýi en ekki ein­hverju öðru. Og hús­ráð­and­inn er ekki einu sinni heima. Er þetta nú sann­gjarnt, hugsa nú ein­hverj­ir, að minnsta kosti ráð­herr­arn­ir. En við verðum að meta þetta fyrsta miss­eri rík­is­stjórn­ar­innar af verkum hennar og líka orðum for­svars­manna henn­ar. Það voru ýmis stór mál á dag­skrá fyrir kosn­ing­ar. Við­reisn kom fram sem nýtt afl sem tal­aði fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Evr­ópu­sam­bandið og rót­tækum breyt­ingum á sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­mál­um. Ein­hvern veg­inn tókst hús­ráð­anda að tala Við­reisn­ar­fólk inn á að geyma sitt stærsta mál þar til seinna – lík­lega þangað til að tími verður kom­inn til að hringja á leigu­bíl og fara heim,“ sagði Katrín í ræðu sinni.

Katrín gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina fyrir rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­ina 2018 til 2022 og sagði hana vera lýsandi fyrir stefnu rík­is­stjórn­ar­inn­ar, þar sem frjáls­hyggju­við­horf væru sjá­an­leg. „Þing­menn og ráð­herrar meiri­hlut­ans tala um að fleiri krónur renni til ýmissa mála­flokka en þegar hlut­fall sam­neysl­unnar af vergri lands­fram­leiðslu er skoðað gerir áætl­unin ráð fyrir að hún drag­ist saman – hún er fjarri því að mæta þeim vænt­ingum sem gefnar voru fyrir síð­ustu kosn­ing­ar. Og það kemur ekki á óvart þar sem áætl­unin boðar enn frek­ari skatta­lækk­anir ofan á allar þær aðgerðir sem síð­asta rík­is­stjórn réðst í til að veikja tekju­stofna rík­is­ins. Þetta er allt í anda sömu sem ber mikla ábyrgð á vax­andi ójöfn­uð­i,“ sagði Katrín. 

Hún sagði það vera verk­efnið framundan að end­ur­reisa vel­ferð­ar­kerf­ið, ekki síst heil­brigð­is­kerf­ið. Þá þyrfti að for­gangs­raða með meiri jöfnuð að leið­ar­ljósi. Þetta væri rík­is­stjórnin ekki að gera. „Við þurfum að end­ur­reisa vel­ferð­ar­kerf­ið. Það er okkar sam­eig­in­lega verk­efni; að reka öfl­ugt heil­brigð­is­kerfi þar sem sjúk­lingar þurfa ekki að bæta fjár­hags­á­hyggjum ofan á veik­indi vegna of hárrar greiðslu­þátt­töku. Við þurfum ekki tvö­falt heil­brigð­is­kerfi. Fólkið í land­inu vill ekki slíkt kerfi, ítrekað hefur það komið fram í skoð­ana­könn­unum að yfir­gnæf­andi meiri­hluti lands­manna vill félags­lega rekið heil­brigð­is­kerfi sem er vel fjár­magn­að. Og þetta fengu stjórn­mála­flokk­arnir allir skýr skila­boð um fyrir kosn­ing­ar, til dæmis með und­ir­skriftum 86.500 Íslend­inga,“ sagði Katrín.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent