Ráðherra biðst afsökunar á misskilningi

Þorsteinn Víglundsson er ósáttur við að ekki hafi tekist að afgreiða frumvörp sem varða málefni fatlaðs fólks með miklar stuðningsþarfir.

7DM_0282_raw_2085.JPG
Auglýsing

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, er ósáttur við að ekki hafi náðst að ljúka afgreiðslu frum­varpa til laga um þjón­ustu við fatlað fólk með miklar stuðn­ings­þarfir (NPA) og um félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga fyrir þing­lok nú í vor. Í þessum frum­varpi felst meðal ann­ars lög­fest­ing samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks, en lög­fest­ingin er „afar mik­il­vægt rétt­inda­mál fyrir fatl­aða“ segir í yfir­lýs­ingu frá Þor­stein­i. 



Hann biðst einnig afsök­unar á því að hafa sakað stjórn­ar­and­stöð­una um að hindra fram­gang máls­ins, þegar hið rétta í mál­inu hafi verið það, að sam­komu­lag hefði verið gert milli minni- og meiri­hluta um hvaða mál yrðu afgreidd. „Minni­hlut­inn hefur gagn­rýnt ummæli mín í fjöl­miðl­um, þess efnis að stjórn­ar­and­staðan hafi hindrað fram­gang máls­ins. Hvað þetta varðar hefur minni­hlut­inn rétti­lega vísað til þess að sam­komu­lag hafi orðið um þessar lyktir mála milli minni- og meiri­hluta. Ummæli mín eru því á mis­skiln­ingi byggð og er mér bæði ljúft og skylt að biðj­ast vel­virð­ingar á því,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þor­steinn áréttar í yfir­lýs­ingu mik­il­vægi þess að þessar breyt­ingar verði afgreiddar fljótt og vel, enda mikið í húfi fyrir not­endur þeirra þjón­ustu sem um ræðir og mik­il­vægt að lág­marka óvissu þegar kemur að mál­inu. „Þverpóli­tísk sam­staða hefur ríkt um mik­il­vægi þess­arar laga­breyt­ingar og allt meg­in­efni henn­ar. Þá er ljóst að þrátt fyrir að málið hafi komið inn til Alþingis strax í byrjun apríl hefur vel­ferð­ar­nefnd haft mörg mál á sinni könnu og því haft minni tíma en æski­legt hefði verið til að ljúka þessum til­teknu mál­um. Þrátt fyrir þröngan tímara­mma var hins­vegar unnin mikil vinna bæði í nefnd og í ráðu­neyti með hags­muna­að­ilum og því stóðu vænt­ingar mínar til að málin myndu klár­ast núna í þing­lok. Það skýrir von­brigði mín við með þessar mála­lykt­ir. Ég fagna því að þverpóli­tísk sam­staða ríkir um að greitt verður fyrir afgreiðslu mál­anna á haust­þingi þannig að þetta mikla fram­fara­skref fyrir fatl­aða fái afgreiðslu í haust,“ segir í yfir­lýs­ingu Þor­steins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent