Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra hefur skipað ellefu aðalmenn og ellefu varamenn í nýtt Jafnréttisráð. Nýr formaður ráðsins er Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri og varaformaður þess er Tinna Traustadóttir. Frá þessu er greint í frétt á heimasíðu ráðuneytisins.
Þar segir að Jafnréttisráð skuli starfa „í nánum tengslum við Jafnréttisstofu og vera ráðherra og framkvæmdastjóra Jafnréttisráðs til ráðgjafar við stefnumótun í málum sem tengjast jafnrétti kynjanna. Sérstök áhersla skal lögð á að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði og samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Þá skal Jafnréttisráð undirbúa jafnréttisþing í samráði við ráðherra og leggja fyrir það skýrslu um störf sín. Jafnréttisþing skal boða innan árs frá alþinigskosningum og aftur að tveimur árum liðnum.“
Í fréttinni er haft eftir Þorsteini að hann hafi fundað með nýjum formanni og varaformanni ráðsins eftir að skipað hafði verið í það. Þar hafi Þorsteinn gert það að umtalsefni hvað mikilvægi Jafnréttisráðs eykst stöðugt og ræddi um að aukin áhersla á jafnréttismál í velferðarráðuneytinu kalli á mikla virkni ráðsins á næstu misserum „Ég er mjög þakklátur því frábæra fólki sem hefur tekið að sér að leiða starf ráðsins á þessu kjörtímabili og spenntur fyrir samstarfinu framundan,“ segir Þorsteinn.
Jafnréttisráð er svo skipað:
Aðalmenn
- Magnús Geir Þórðarson, skipaður án tilnefningar, formaður
- Maríanna Traustadóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
- Þórunn Sveinbjarnardóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
- Pétur Reimarsson, tiln. af fjármálaráðuneyti og Samtökum atvinnulífsins
- Einar Mar Þórðarson, tiln. af fjármálaráðuneyti og Samtökum atvinnulífsins
- Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, tiln. af Samtökum um kvennaathvarf og Stígamótum
- Kristín I. Pálsdóttir, tiln. af Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum
- Hróðmar Dofri Hermannsson, tiln. af Félagi um foreldrajafnrétti
- Anna Guðrún Björnsdóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Guðrún Þórðardóttir, tiln. af Femínistafélagi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands og Kvenréttindafélagi Íslands
- Tatjana Latinovic, tiln. af Femínistafélagi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands og Kvenréttindafélagi Íslands
Varamenn
- Tinna Traustadóttir, án tilnefningar, varaformaður
- Jóhann R. Sigurðsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
- Hlöðver Sigurðsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
- Kristín Þóra Harðardóttir, tiln. af fjármálaráðuneyti og Samtökum atvinnulífsins
- Halldóra Friðjónsdóttir, tiln. af fjármálaráðuneyti og Samtökum atvinnulífsins
- Sigþrúður Guðmundsdóttir, tiln. af Samtökum um kvennaathvarf og Stígamótum
- Kristinn Schram, tiln. af Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum
- Guðný S. Bjarnadóttir, tiln. af Félagi um foreldrajafnrétti
- Bjarni Ómar Haraldsson, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, tiln. af Femínistafélagi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands og Kvenréttindafélagi Íslands
- Una Hildardóttir, tiln. af Femínistafélagi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands og Kvenréttindafélagi Íslands