Birgitta: Aðför að réttarríkinu

Birgitta Jónsdóttir Pírati segir sjálfstæðismenn með stuðningi Viðreisnar hafa staðið að því að styðja tillögu dómsmálaráðherra um 15 dómara við Landsrétt.

birgitta jónsdóttir
Auglýsing

„Svo óend­an­lega dap­ur­legt: Sjálf­stæð­is­menn­irnir fjórir og hann Pawel úr Við­reisn sam­þykktu í stjórn­skip­unar og eft­ir­lits­nefnd til­lögu Sig­ríðar Á. And­er­sen með hennar geð­þótta­breyt­ingar á nýju dóms­stigi, þar sem hún fer á skjön við þá sem sjálf­stæð hæf­is­nefnd taldi hæf­asta. Þetta er gert án þess að þing­menn geti farið yfir málið á falegum for­send­um, án aðgengis að fag­legum rök­stuðn­ingi frá ráð­herra, enda kom í ljós að ráð­herr­ann fór bara eftir eigin skoð­unum og telur sig hæfari en fag­leg dóm­nefnd til að meta þetta. Til­lagan verður lögð fyrir þingið til sam­þykktar eða synj­unar á eft­ir. Verður auð­vitað sam­þykkt, því meiri­hlut­inn ræður alltaf :( Munu þing­menn Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar sam­þykkja að þetta nýja dóms­stig verði sett í fram­kvæmd undir bika­svörtu spill­ing­ar­skýji og van­trausti. Mér finnst þetta aðför að rétt­ar­rík­inu.

Minni­hlut­inn lagði til að við myndum fá tíma til að fara yfir ábend­ingar um hvað þarf að kalla eftir en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gerir bara það sem honum sýn­ist enda ræður meiri­hlut­inn alltaf.“



Þannig lýsir Birgitta Jóns­dótt­ir, Pírati, því á Face­book síðu sinni hvernig staðið var að því að styðja til­lögu Sig­ríðar And­er­sen dóms­mála­ráð­herra um skipan 15 dóm­ara við Lands­rétt. 

Til­­laga Sig­ríðar Á. And­er­­sen, dóms­­mála­ráð­herra, um skipan dóm­­ara við Lands­rétt var afgreidd í ágrein­ingi úr stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefnd, að því er fram kom í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Meiri­hluti nefnd­­ar­innar styður til­­lögu ráð­herr­ans en minn­i­hlut­inn vildi fá meiri tíma til að fara yfir málið og var því ekki sáttur við að málið skyldi afgreitt úr nefnd­inni í dag.

Auglýsing

Eins og greint var frá á vef Kjarn­ans í gær, þá mat hæf­is­­nefnd um mat á umsækj­endum í stöðu dóm­­ara við Lands­rétt Davíð Þór Björg­vins­­son, Sig­­urð Tómas Magn­ús­­son og Ragn­heiði Harð­­ar­dóttur hæfust.

Sam­­­kvæmt lista hæf­is­­­nefnd­­­ar­innar var Ást­ráður Har­alds­­­son hrl., sem hefur talið til­­lögu dóms­­mála­ráð­herra lög­­brot - líkt og Lög­­­manna­­fé­lag Íslands - númer 14 á list­an­­­um. Einn þeirra sem Sig­ríður Á. And­er­­­sen, dóms­­­mála­ráð­herra, gerir til­­­lögu um að verði á meðal 15 dóm­­­urum við Lands­rétt er Jón Finn­­­björns­­­son en hann er númer 30 á lista hæf­is­­­nefnd­­­ar­inn­­­ar. Þá er Eiríkur Jóns­­­son númer 7 á lista hæf­is­­­nefnd­­­ar­inn­­­ar, en hann er ekki á meðal þeirra 15 sem ráð­herra gerir til­­­lögu um í stöðu dóm­­­ara.

Ást­ráður Har­alds­­­son og Eiríkur Jóns­­­son, ásamt Jóhann­esi Rún­­­­­ari Jóhanns­­­syni og Jóni Hösk­­­ulds­­­syni hlutu ekki náð fyrir augum ráð­herr­ans heldur þau Arn­­­fríður Ein­­­ar­s­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ásmundur Helga­­­son og Jón Finn­­­björns­­­son.

Þau 15 sem ráð­herra gerir til­­­lögu um í stöðu dóm­­­ara við Lands­rétt eru Aðal­­­­­steinn E. Jón­a­s­­­son, Arn­fríður Ein­­­ar­s­dótt­ir, Ás­­­mundur Helga­­­son, Dav­­­íð Þór Björg­vins­­­son, Her­vör Þor­­­valds­dótt­ir, Ing­veldur Ein­­­ar­s­dótt­ir, Jóhannes Sig­­­urðs­­­son, Jón Finn­­­björns­­­son, Krist­­­björg Steph­­­en­­­sen, Oddný Mjöll Arn­­­ar­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ragn­heiður Harð­­­ar­dótt­ir, Sig­­­urður Tómas Magn­ús­­­son, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­­­son og Þor­­­geir Ingi Njáls­­­son.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent