Verðfall á hlutabréfum og krónan heldur áfram að styrkjast

Krónan heldur áfram að styrkjast og fátt virðist benda til annars en að sú verði raunin áfram næstu mánuði.

peningar
Auglýsing

Banda­ríkja­dalur kostar nú 97,2 krónur og hélt gengi krón­unnar áfram að styrkj­ast gagn­vart helstu við­skipta­myntum í dag, líkt og raunin hefur verið allt þetta ár. Raun­gengi krón­unn­ar, að teknu til­lit til verð­lags­þró­un­ar, er nú sterkara en það var árið 2007 og útlit fyrir að frek­ari styrk­ing sé í kort­un­um, þar sem mikið gjald­eyr­is­inn­streymi fylgir háanna­tíma í ferða­þjón­ust­unni, sem er á næstu þremur mán­uð­um.

Heild­ar­tekjur af þjón­ustu­út­flutn­ingi á fyrsta árs­fjórð­ungi 2017 voru, sam­kvæmt bráða­birgða­tölum Hag­stofu Íslands, 125,8 millj­arðar króna en útgjöld vegna inn­fluttrar þjón­ustu 82,8 millj­arð­ar. Þjón­ustu­jöfn­uður við útlönd var því jákvæður um 43,1 millj­arð króna en var jákvæður um 29,9 millj­arða á sama tíma árið 2016 á gengi hvors árs. Þarna munar mestu um vöxt í ferða­þjón­ustu.

Eins og sjá má hefur gengi krónunnar styrkst mikið að undanförnu.

Auglýsing

Á hluta­bréfa­mörk­uðum í dag var tölu­verð rús­sí­ban­areið, en mark­aðsvirði allra félaga í kaup­höll­inni lækk­aði en mesta lækk­unin var á bréfum í Hög­um. Bréf félags­ins lækk­uðu um rúm­lega 3 pró­sent og mark­aðsvirði þessa stærsta smá­sölu­fyr­ir­tækis lands­ins - að und­an­skildu ris­anum Costco vita­skuld - 59,7 millj­arðar króna.

Gengi krón­unnar gagn­vart pund­inu hélt áfram að styrkjast, og kostar pundið nú 125 krón­ur, en fyrir tæp­lega ári síð­an, fyrir Brexit kosn­ing­una, þá kost­aði pundið 206 krón­ur. Mikil breyt­ing hefur því orðið á skömmum tíma. Þetta kemur sér illa fyrir íslenskan útflutn­ing, einkum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, en Bret­land er stærsta ein­staka við­skipta­land okkar fyrir þorsk.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent