Þorsteinn Víglunfsson, félags- og jafnréttismálaráðherra skipaði 19. maí síðastliðinn nýja stjórn Tryggingastofnunar ríkisins, í samræmi við lög. Ráðherra skipaði Árna Pál Árnason, fyrrverandi ráðherra, þingmann og formann Samfylkingarinnar, sem formann stjórnar og Héðinn Svarfdal, verkefnastjóra hjá Landlækni, varamann hans.
Aðrir fulltrúar í stjórn voru tilnefndir af þingflokkum á Alþingi.
Aðalmenn í stjórn:
- Árni Páll Árnason, formaður stjórnarinnar
- Ásta Möller, varaformaður
- Guðlaug Kristjánsdóttir
- Guðrún Ágústa Þórdísardóttir
- Sigrún Aspelund
Varamenn
- Héðinn Svarfdal Björnsson
- Petrea Ingibjörg Jónsdóttir
- Dagný Rut Haraldsdóttir
- Bergþór Heimir Þórðarson
- Halldóra Magný Baldursdóttir
Auglýsing