Sigurvin Ólafsson ráðinn ritstjóri DV

Framkvæmdastjóri DV hefur tekið við stöðu ritstjóra á DV. Hann verður ritstjóri við hlið Kolbrúnar Bergþórsdóttur.

7DM_0815_raw_2406.JPG
Auglýsing

Sig­ur­vin Ólafs­son, sem verið hefur fram­kvæmda­stjóri DV um nokk­urt skeið, hefur tekið við starfi rit­stjóra hjá miðl­in­um. Kol­brún Berg­þórs­dóttir verður áfram rit­stjóri við hlið hans. Frá þessu er greint á Vísi.­is.

Þar segir Sig­ur­vin að hann hafi ein­hvern tíma verið frétta­maður á RÚV, í sum­ar­starfi. „Fyrir rúmum tíu árum. Annað er það nú ekki. Svo hef ég verið að vinna í kringum blaðið núna síð­ustu mán­uð­i.“ Hann seg­ist ekki vita hvort blaðið taki miklum breyt­ingum með aðkomu hans. Það sé „ekki eins og ég sé að koma úr öðru rit­stjóra­starfi. Ég spinn þetta ein­hvern veg­inn áfram. Ég á eftir að dýfa mér á kaf í þetta.“ 

Í frétt á DV.is er auk þess greint frá því að Björn Ingi Hrafns­son verði rit­stjóri Eyj­unnar og Krist­jón Kor­mákur Guð­jóns­son er nýr rit­stjóri DV.is og Pressunn­ar. 

Auglýsing

Miklar vær­ingar hafa verið í kringum Press­una, eig­anda DV, og tengda aðila und­an­farnar vik­ur. Til­­­kynnt var um það 18. apríl að hlutafé útgáfu­­­fé­lags­ins Pressunnar yrði aukið um 300 millj­­­ónir króna. Sam­hliða átti Björn Ingi Hrafns­­­son, stofn­andi Pressunnar og sá sem leitt hefur yfir­­­­­tökur hennar á öðrum miðlum und­an­farin ár, að stíga til hlið­­­ar.

Kjarn­inn greindi frá því skömmu síðar að end­­ur­­skipu­lagn­ing Pressu­­sam­­stæð­unnar væri í upp­­­námi. Í ljós hefði komið að þær 300 millj­­­ónir króna sem til­­­kynnt hefur verið um að setja ætti inn í sam­­­stæð­una dugi ekki til. Gatið sem þurfi að brúa til að gera hana rekstr­­­ar­hæfa sé nálægt 700 millj­­­ónum króna að þeirra mati.

17. maí greindi Kjarn­inn frá því að þeir fjár­­­festar sem ætl­uðu að setja nýtt hlutafé inn í Pressu­­sam­­stæð­una væru nær allir hættir við. Félag í eigu Hall­­­­dórs Krist­­manns­­son­­ar, Róberts Wessman, Árna Harð­­­­ar­­­­son­­­­ar, Hilm­­­­­­­ars Þórs Krist­ins­­­­sonar og Jóhanns G. Jóhanns­­­­son­­­­ar, Fjár­­­­­­­fest­inga­­­­fé­lagið Dal­­­­ur­inn ehf., ætl­­­aði að verða langstærsti eig­andi Pressunnar og koma inn með 155 millj­­­­ónir króna af nýju hluta­­fé. 

Útgáfu­dögum DV hefur verið fækkað í einn og reynslu­miklu starfs­fólki verið sagt upp í til­raun til að rétta rekst­ur­inn af. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent