Rannsóknarnefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings birti í gærkvöldi yfirlýsingu James Comey, fyrrverandi forstjóra bandarísku alríkislögreglunnar FBI, sem hann hyggst gefa fyrir nefndinni á í dag. Yfirheyrslan hefst um klukkan 14:00 að íslenskum tíma.
Eins og fram kom á vef Kjarnans í gær, þá segir Comey í yfirlýsingunni - sem er eins og konar skriflegur vitnisburður hans um samskipti hans við Donald Trump - að Bandaríkjaforseti hafi brýnt fyrir sér að hætta rannsókn á þáverandi þjóðaröryggisráðgjafa sínum, Michael Flynn, og þrýst á um að rannsókn á Rússlandstengingum hans hætt. Flynn hætti sem þjóðaröryggisráðgjafi eftir 20 daga í því starfi, þar sem hann hafði ekki upplýst Trump og Mike Pence, varaforseta, um að hann hefði rætt viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna gagnvart Rússum á fundi hans með Sergey Kislyak, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum.
„Ég vona að þú getir séð þér fært að sleppa þessu og látið Flynn vera. Hann er góður náungi,“ segir Comey að Trump hafi sagt, samkvæmt yfirlýsingunni. „Forsetinn sagði, „Ég þarf hollustu, ég býst við hollustu.“ Ég hreyfði mig ekki og talaði hvorki né breytti andlitssvipnum mínum á nokkurn máta, í þeirri vandræðalegu þögn sem síðan fylgdi,“ segir Comey í yfirlýsingunni.
Yfirheyrsla Comeys er stór viðburður í Bandaríkjunum, en reiknað er með því að tugir milljóna manna muni horfa á beina útsendingu þegar hann mun svara spurningum nefndarmanna.
Comey segir að Trump sjálfur, hafi þrýst á um að það kæmi fram opinberlega, að hann væri ekki til rannsóknar vegna Rússlandstenginga.
Comey segir að þrátt fyrir að hann hafi ekki verið það, á þeim tímapunkti í rannsókninni, þá hafi hann einungis sagt, að hann myndi fyrst og síðast fá heiðarleg svör frá honum við spurningum sem hann gæti svarað.
Trump rak Comey úr starfi, eftir að hafa fengið rökstuðning þess efnis frá Jeff Sessions, dómsmálaráðherra, en hann er einn þeirra sem einnig er til rannsóknar vegna tenginga við Rússa í aðdraganda kosninga í fyrra.
Rannsóknir FBI, leyniþjónustunnar CIA og tveggja þingnefnda Bandaríkjaþings, eru enn í fullum gangi og ekki ljóst hvenær þeim mun ljúka.