Comey kemur fyrir þingnefnd í dag

Helstu atriðin úr vitnisburði James Comey, fyrrverandi forstjóri alríkislögreglunnar FBI, voru birt í gær, en Comey skilaði inn skriflegum atriðum um samskipti sín og Bandaríkjaforseta í gær.

James Comey var forstjóri FBI þar til Donald Trump lét hann fara nýverið.
James Comey var forstjóri FBI þar til Donald Trump lét hann fara nýverið.
Auglýsing

Rann­sókn­ar­nefnd öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings birti í gær­kvöldi yfir­lýs­ingu James Comey, fyrr­ver­andi for­stjóra banda­rísku alrík­is­lög­regl­unnar FBI, sem hann hyggst gefa fyrir nefnd­inni á í dag. Yfir­heyrslan hefst um klukkan 14:00 að íslenskum tíma.

Eins og fram kom á vef Kjarn­ans í gær, þá  seg­ir Comey í yfir­lýs­ing­unni - sem er eins og konar skrif­legur vitn­is­burður hans um sam­skipti hans við Don­ald Trump - að Banda­­ríkja­­for­­seti hafi brýnt fyr­ir sér að hætta rann­­­sókn á þáver­andi þjóð­ar­­ör­ygg­is­ráð­gjafa sín­um, Mich­­ael Flynn, og þrýst á um að rann­­sókn á Rús­s­lands­teng­ingum hans hætt. Flynn hætti sem þjóð­ar­­ör­ygg­is­ráð­gjafi eftir 20 daga í því starfi, þar sem hann hafði ekki upp­­lýst Trump og Mike Pence, vara­­for­­seta, um að hann hefði rætt við­­skipta­þving­­anir Banda­­ríkj­anna gagn­vart Rússum á fundi hans með Sergey Kis­lyak, send­i­herra Rús­s­lands í Banda­­ríkj­un­­um.

„Ég vona að þú get­ir séð þér fært að sleppa þessu og látið Flynn vera. Hann er góður ná­ung­i,“ seg­ir Comey að Trump hafi sagt, sam­­kvæmt yfir­­lýs­ing­unn­i. „For­­­set­inn sagð­i, „Ég þarf holl­ustu, ég býst við holl­­ust­u.“ Ég hreyfði mig ekki og tal­aði hvorki né breytti and­lits­­­svipn­um mín­um á nokk­urn máta, í þeirri vand­ræð­al­egu þögn sem síðan fylgd­i,“ seg­ir Comey í yfir­­lýs­ing­unni.

Auglýsing

Yfir­heyrsla Comeys er stór við­burður í Banda­ríkj­un­um, en reiknað er með því að tugir millj­óna manna muni horfa á beina útsend­ingu þegar hann mun svara spurn­ingum nefnd­ar­manna. 

Comey segir að Trump sjálf­­ur, hafi þrýst á um að það kæmi fram opin­ber­­lega, að hann væri ekki til rann­­sóknar vegna Rús­s­lands­teng­inga. 

Comey segir að þrátt fyrir að hann hafi ekki verið það, á þeim tíma­­punkti í rann­­sókn­inni, þá hafi hann ein­ungis sagt, að hann myndi fyrst og síð­­­ast fá heið­­ar­­leg svör frá honum við spurn­ingum sem hann gæti svar­að. 

Trump rak Comey úr starfi, eftir að hafa fengið rök­­stuðn­­ing þess efnis frá Jeff Sessions, dóms­­mála­ráð­herra, en hann er einn þeirra sem einnig er til rann­­sóknar vegna teng­inga við Rússa í aðdrag­anda kosn­­inga í fyrra.

Rann­sóknir FBI, leyni­þjón­ust­unnar CIA og tveggja þing­nefnda Banda­ríkja­þings, eru enn í fullum gangi og ekki ljóst hvenær þeim mun ljúka. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent