Um 60 prósent af nýjum störfum í hagkerfinu, á undanförnu ári, hafa verið í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Samtals fjölgaði launþegum um 8.500 á undanförnu ári og voru um fimm þúsund af þeim í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands, sem birtar voru í dag.
Störfum í sjávarútvegi hefur fækkað um 300.
Mikill vöxtur í ferðaþjónustu hefur verið helsti drifkraftur hagvaxtar hér á landi undanfarin ár, en því er spáð að um 2,3 milljónir erlendra ferðmanna heimsæki landið á þessu ári samanborið við 1,8 milljónir í fyrra. „Á tólf mánaða tímabili, frá maí 2016 til apríl 2017, voru að jafnaði 17.079 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 790 (4,8%) frá síðustu 12 mánuðum á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 182.800 einstaklingum laun sem er aukning um 8.500 (4,9%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr. Skipt eftir atvinnugreinum hefur launþegum fjölgað mikið á milli ára hjá launagreiðendum í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Launþegum hefur hins vegar fækkað í sjávarútvegi,“ segir á vef Hagstofu Íslands.
Í apríl voru 2.478 launagreiðendur og um 11.500 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.600 eða um 16% samanborið við apríl 2016. Sömuleiðis voru í mars 1.614 launagreiðendur og um 25.100 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 3.400 eða um 16% á einu ári. Launþegum hefur á sama tíma fjölgað um 8.500 eða um 5%.
Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja, að því er segir á vef Hagstofu Íslands, sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.