Aflandskrónurnar nú 88 milljarðar

Snjóhengju aflandskróna hefur ekki verið eytt ennþá með útboðum.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Auglýsing

Loka­upp­gjör um kaup á aflandskrónum fór fram í gær og keypti Seðla­bank­inn aflandskrónur fyrir 112,4 millj­arða króna að mark­aðsvirði, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands. Eftir upp­boðin eru aflandskrón­urnar enn 88 millj­arð­ar.

Auglýsing

Til­kynn­ing Seðla­bank­ans, sem birt­ist nú rétt í þessu, er eft­ir­far­andi:

„Frá 12. mars síð­ast­liðnum hefur Seðla­banki Íslands keypt aflandskrónu­eignir í tveimur áföngum fyrir sam­tals um 112,4 millj­arða króna á geng­inu 137,5 krónur á evr­u. 

Seðla­bank­inn til­kynnti 12. mars síð­ast­lið­inn um sam­komu­lag um kaup á aflandskrónu­eign­um, eins og þær eru skil­greindar í lögum nr. 37/2016, um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­un­um, að fjár­hæð u.þ.b. 90 millj­arðar króna á geng­inu 137,5 krónur á evru. Jafn­framt var til­kynnt að bank­inn hygð­ist bjóða öðrum eig­endum aflandskrónu­eigna sömu kjör. Það boð var ítrekað 4. apríl og 5. maí sl. með fréttum bank­ans um fyr­ir­komu­lag og skil­mála. Til­boðið náði til aflandskrónu­eigna í formi inn­stæðna, víxla og skulda­bréfa sem gefin eru út af rík­is­sjóði eða Íbúða­lána­sjóði, og inn­stæðu­bréfa Seðla­bank­ans (CBI2016). Frestur til að ganga að til­boði bank­ans var fram­lengdur í tvígang en rann svo út föstu­dag­inn 15. júní sl. og fór loka­upp­gjör við­skipt­anna fram í gær. 

Alls keypti Seðla­bank­inn í þessum við­skiptum aflandskrónu­eignir fyrir 112,4 ma.kr. að mark­aðsvirði sem skipt­ust milli eign­ar­flokka eins og sjá má í eft­ir­far­andi töflu:

Eigna­flokkar aflandskrónu­eigna m.kr.

Reiðufé og inn­stæðu­bréf:     46.501

Rík­is­bréf og -víxl­ar:                61.988

Skulda­bréf Íbúða­lána­sjóðs:    3.954

Sam­tals:                                 112.443

Sam­kvæmt mati Seðla­bank­ans nema aflandskrónu­eignir um 88 ma.kr. eftir við­skipt­in. Að gefnu til­efni vekur Seðla­banki Íslands athygli þeirra sem kunna að hafa gengið að til­boði bank­ans og upp­fylla skil­yrði 12. gr. laga nr. 37/2017 um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­unum á að með lögum nr. 27/2017 sem tóku gildi 27. maí 2017 var heim­ild til úttektar af reikn­ingum háðum sér­stökum tak­mörk­unum sam­kvæmt ákvæð­inu breytt. Eftir breyt­ing­una hafa ein­stak­lingar heim­ild til þess að taka út allt að 100.000.000 kr. af reikn­ingi háðum sér­stökum tak­mörk­unum á alm­an­aks­ári ef þeir geta sýnt fram á sam­fellt eign­ar­hald á aflandskrónu­eign frá 28. nóv­em­ber 2008. Þessa heim­ild hafa einnig þeir ein­stak­lingar sem áttu íslenskar krónur á fjár­vörslu­reikn­ingi, sem telj­ast aflandskrónu­eignir skv. b-lið 1. tölul. 2. gr. laga nr. 37/2016, við gild­is­töku lag­anna. 

Ofan­greind breyt­ing á heim­ild til úttektar sam­kvæmt 12. gr. laga nr. 37/2016 á aflandskrónu­eignum var gerð eftir að Seðla­banki Íslands bauðst til þess að kaupa slíkar eignir í skiptum fyrir reiðufé í evrum á geng­inu 137,5 krónur á evru, en áður en upp­gjör við­skipt­anna fór fram. Í ljósi þess að ein­hverjir þeirra sem gengu að til­boði bank­ans kunna að hafa átt heim­ild til úttektar skv. hinu breytta ákvæði býður Seðla­bank­inn þeim sem telja sig upp­fylla skil­yrði ákvæð­is­ins um sam­fellt eign­ar­hald á aflandskrónu­eign að óska eftir stað­fest­ingu þess efnis frá bank­an­um. Upp­fylli þeir skil­yrði ákvæð­is­ins mun bank­inn greiða þeim mis­mun­inn á skráðu sölu­gengi Seðla­bank­ans hinn 15. júní 2017 og til­boðs­geng­inu í evrum með hlið­sjón af heim­ild­inn­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent