Vill að lífeyrissjóðir fjárfesti meira erlendis

Benedikt Jóhannesson segir að það komi til greina að þrýsta íslensku lífeyrissjóðunum í frekari erlendar fjárfestingar ef þeir færi sig ekki í slíkar í auknum mæli sjálfir. Hlutfall þeirra sé um 20 prósent af heildareignum en ætti að vera um 50 prósent.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra 7DM_3034_raw_170614.jpg
Auglýsing

Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að það komi vel til greina að grípa til aðgerða við að þrýsta íslenskum líf­eyr­is­sjóðum í frek­ari erlendar fjár­fest­ingar ef þeir hreyfi sig ekki sjálfir í þá átt. „Al­mennt talað er betra að þeir sjái sér hag í því sjálfir og það er skyn­sam­legt fyrir þá að fara í meiri fjár­fest­ingar erlendis út frá áhættu­dreif­ing­ar­sjón­ar­mið­i,“ segir Bene­dikt.



Líf­eyr­is­sjóð­irnir gátu nán­ast ekk­ert fjár­fest erlendis eftir að höft voru sett á hér­lendis í lok árs 2008. Fyrir vikið eru þeir gríð­ar­lega umsvifa­miklir í íslensku atvinnu­lífi og eiga m.a., beint og óbeint, yfir helm­ing skráðra hluta­bréfa. Sjóð­irnir byrj­uðu að fá und­an­þágur á árinu 2015 til að fjár­festa tak­mark­aðar upp­hæðir utan hafta og eftir að höft voru losuð að mestu fyrr á þessu ári þá geta líf­eyr­is­sjóðir fjár­fest mun meira erlendis en þeir hafa gert hingað til.

Í byrjun árs 2017 var hlut­fall eigna þeirra erlendis 22,6 pró­sent að með­al­tali en sam­kvæmt tölum Seðla­banka Íslands hafa þær dreg­ist saman á und­an­förnum mán­uð­um. Sá sam­dráttur er þó nær örugg­lega ein­vörð­ungu vegna styrk­ingu krón­unn­ar.

Auglýsing

Sér­fræð­ingar hafa bent á að hlut­fall erlendra eigna líf­eyr­i­s­jóða­kerf­is­ins ætti að vera á bil­inu 35-45 pró­sent út frá áhættu­dreif­ing­ar­sjón­ar­miði. Auk þess er ljóst að það myndi vinna gegn frek­ari styrk­ingu krón­unnar ef sjóð­irnir myndu fjár­festa meira erlend­is.

Bene­dikt seg­ist telja að hlut­fall þeirra í erlendum eignum ætti að vera nálægt 50 pró­sent, og því sé langt í land að það sé ásætt­an­legt. „Hlut­fall þeirra í t.d. inn­lendum hluta­bréfum er orðið óþægi­legt félags­lega. Ég held að það væri heil­brigt að þeir færu meira út og að almenn­ingur færi að huga meira að því að dreifa sinni áhættu með gjald­eyr­is­reikn­ing­um. Ég er ekki að tala um að menn ættu að fara með pen­inga til Pana­ma, heldur að opna slíka reikn­inga í íslenskum bönk­um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent