Ráðleggur dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna að rannsaka FL Group

Í nýrri grein sem birtist á Bloomberg- fréttasíðunni var sagt frá því að grunur leiki á um að FL group hafi verið milliliður í fjártengslum Donald Trump við rússneska auðjöfra.

Fréttastofan Bloomberg segir hugsanlegt að FL Group hafi verið styrkt af rússneskum óligörkum.
Fréttastofan Bloomberg segir hugsanlegt að FL Group hafi verið styrkt af rússneskum óligörkum.
Auglýsing

Bloomberg birti í dag grein þar sem frétta­stofan færði rök fyrir því að dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna ætti að skoða fjár­mögnun FL Group vegna hugs­an­legra tengsla við Rúss­land. 

Í frétt­inni segir frá Felix Sater, fyrr­ver­andi rekstr­ar­stjóra fast­eigna­sam­stæð­unnar Bayrock Group og dæmdum fjár­glæfram­anni með teng­ingar við rúss­nesk glæpa­sam­tök. Þrátt fyrir það hafi Don­ald Trump, Banda­ríkja­for­seti haldið tengslum við Sater þar sem Bayrock og Trump hafi meðal ann­ars staðið að baki bygg­ingu Trump Soho hót­els­ins í Man­hatt­an. 

Einn stærsti bak­hjarl Bayrock var FL Group, fjár­fest­inga­fé­lag í eigu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­son­ar, en Bloomberg segir Sater hafa nýtt sér þenslu­á­standið á Íslandi árið 2007 og sann­fært FL Group í að fjár­festa í Bayrock. 

Auglýsing

FL Group er lýst sem hluti af hinum íslensku útrás­ar­vík­ing­um, sem sumir hverjir áttu að hafa veitt óábyrg lán, verið með við­skipta­tengsl milli hverja aðra og fram­leitt afvega­leið­andi fjár­hags­upp­lýs­ing­ar. Einnig eru ummæli Jóns Ásgeirs í við­tali við RetailWeek rifjuð upp þar sem hann lýsir sér frekar sem rokk­stjörnu heldur en við­skipta­manni. Félagið hafi síðan orðið gjald­þrota fyrst allra stórra fyr­ir­tækja á Íslandi í októ­ber 2008. 

Bloomberg spurði Ólaf Þór Hauks­son, fyrr­ver­andi sér­stakan sak­sókn­ara, og Evu Joly úti í meintar teng­ingar FL group við styrkjum frá rúss­neskum sjóð­um. Hvorug þeirra sögð­ust hafa orðið var við neitt slíkt, enda höfðu þau ekki ein­beitt sér að greiðslum og samn­ingum erlend­is. 

Hins vegar segir annar ónafn­greindur starfs­maður sem var tengdur rann­sóknum í kjöl­far banka­hruns­ins á Íslandi að rúss­neskur pen­ingur hafi lík­lega farið í gegnum bank­ana hér, en það sé umræðu­efni sem Íslend­ingar forð­is­t. 

Boris Ber­ezov­sky, einn stærstu auð­jöfra Rúss­lands, fannst teng­ingin milli Rúss­lands og Íslands aug­ljós. Árið 2009 sagði hann í við­tali við SkyTV að Ísland væri besta dæmi um hugs­an­legan stað þar sem Pútín Rúss­lands­for­seti og vinir hans stund­uðu pen­inga­þvætti. Ísland á að hafa verið hluti af kerfi sem var búið til af Pútín og öðrum hátt settum rúss­neskum emb­ætt­is­mönnum til að kaupa eignir utan Rúss­lands, að sögn Ber­ezov­sky. Hægt er að skoða við­talið í Youtu­be-­klippu hér að neð­an, talið berst að Íslandi eftir tvær mín­útur og 40 sek­únd­ur. 

Jody Kriss, inn­herji Bayrock, sagði Björgólf Þór Björg­ólfs­son einnig hafa viljað fjár­festa í Bayrock Group. Fyr­ir­tækið hafi hins vegar ákveðið að velja frekar FL Group vegna þess hve náið fyr­ir­tækið var Pútín. 

Í nið­ur­lagi frétt­ar­innar seg­ir: „Jafn­vel þótt Pútín hafi ekki haft neitt að gera með FL, þá var FL tengt Bayrock með 50 millj­óna dala fjár­fest­ingu. Og Bayrock var við­skipta­vinur núver­andi Banda­ríkja­for­seta. Í ljósi þess gæti verið snið­ugt fyrir dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna að skoða hvaðan pen­ingar Bayrock og FL group komu.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent