Ávöxtun batnar en stærstu sjóðirnir enn í miklum mínus

Sjóður Íslenskra verðbréfa hefur ávaxtast best af öllum hlutabréfasjóðum á undanförnu ári, miðað við stöðuna 23. júní. Þrír af fjórum stærstu sjóðunum eru enn í miklum mínus.

olíuverð
Auglýsing

Ávöxtun stærstu sjóða lands­ins, í inn­lendum hluta­bréf­um, hefur batnað á und­an­förnum mán­uð­um, sam­hliða upp­takti á mörk­uð­um, en þrír af fjórum stærstu hluta­bréfa­sjóð­unum eru þó enn í umtals­verðum mínus í árs­á­vöxt­un. Stefnir ÍS 15, sem er upp á 38,1 millj­arð króna, hefur verið með nei­kvæða ávöxtun upp á 8,54 pró­sent á und­an­förnu ári, Lands­bréf - Úrvals­bréf, sem er upp á 13,5 millj­arða, með nei­kvæða ávöxtun upp á 11,38 pró­sent og Lands­bréf - Önd­veg­is­bréf,­upp á 5 millj­arða, með nei­kvæða ávöxtun upp á 12,24 pró­sent.

Það sem skýrir nei­kvæða ávöxtun er meðal ann­ars mikil lækkun á mark­aðsvirði Icelanda­ir, en sjóð­irnir eiga stóra eign­ar­hluti í félag­in­u. 

Af þeim ell­efu inn­lendu hluta­bréfa­sjóð­um, sem birta ávöxtun sína á vef Keld­unnar, er ÍV hluta­bréfa­sjóð­ur, sjóður Íslenskra verð­bréfa, nú með bestu ávöxt­un­ina en hún er 11,84 pró­sent. Stærð sjóðs­ins er upp á 1,7 millj­arða. 

Auglýsing

Hér má sjá hvernig ávöxtun innlendra hlutabréfasjóða hefur verið, á undanförnum tólf mánuðum.Þar á eftir koma sjóður Júpiters - Inn­lend hluta­bréf - með ávöxtun upp á 10,88 pró­sent og GAMMA: Equity, með ávöxtun upp á 10,29 pró­sent. Sjóður Júpiters er með heild­ar­stærð upp á 4 millj­arða en hjá GAMMA er hann 4,6 millj­arð­ar. 

Aðrir sjóðir en þeir, sem hér eru nefndir að ofan, eru með ávöxtun á bil­inu 1,4 til 6,3 pró­sent.

Fyrir ári síðan stóð vísi­tala íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins í 1787 stigum en við opnun mark­aða í morgun var hún í 1808 stig­um, og hefur hún því hækkað um lítið eitt, und­an­farið ár, eða sem nemur 1,2 pró­sent­u­m. 

Sé mið tekið af því hafa sex sjóðir af ell­efu skilað betri ávöxtun á und­an­förnu ári heldur en mark­að­ur­inn. Sam­an­lögð stærð sjóð­anna er 82,6 millj­arðar króna.

Upp­fært: Eins og sjá má, á mynd­inni hér að ofan, er miðað við 23. júní í nokkrum til­vikum og svo 26. júní í öðr­um. Sé miðað við sömu dag­setn­ingu, og nýj­ustu upp­lýs­ing­ar, þá lítur myndin aðeins öðru­vísi út. Ávöxtun GAMMA: Equity er þá best, og heldur dregur úr nei­kvæðri ávöxtun þriggja stærstu sjóð­anna, sbr. myndin hér að neð­an. 

Hér má sjá stöðuna eins og hún er, miðað við 26. júní.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent