Birna Ósk í stjórn Já

Birna Ósk Einarsdóttir kemur ný inn í stjórn Já hf. Birna er framkvæmdastjóri markaðs- og þróunarsviðs hjá Landsvirkjun.

Birna Ósk Einarsdóttir, nýr stjórnarmaður Já hf.
Birna Ósk Einarsdóttir, nýr stjórnarmaður Já hf.
Auglýsing

Ný stjórn Já  

Ný stjórn Já hf. var kjörin á aðal­fundi félags­ins sem hald­inn var þann 20. júní sl., í henni eru Einar Pálmi Sig­munds­son, stjórn­ar­for­mað­ur, Birna Ósk Ein­ars­dóttir og Kjartan Örn Ólafs­son. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu Já hf.

Einar Pálmi og Kjartan örn hafa áður setið í stjórn Já, en Einar er fjár­fest­inga­stjóri hjá Virð­ingu hf. og Kjartan er fram­kvæmda­stjóri nýsköp­un­ar­fé­lags­ins Volta ehf. 

Auglýsing

Birna Ósk Ein­ars­dóttir kemur hins vegar ný inn í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Hún tók nýverið við sem fram­kvæmda­stjóri mark­aðs- og við­skipta­þró­un­ar­sviðs hjá Lands­virkjun en áður starf­aði hún hjá Sím­anum eða frá árinu 2002 og frá árinu 2014 sem fram­kvæmda­stjóri sölu og þjón­ustu­sviðs. Birna situr einnig í stjórn Skelj­ungs. Hún útskrif­að­ist frá HR árið 2008 með masters­gráðu í stjórnun og stefnu­mót­un. Birna er með BS gráðu í við­skipta­fræði frá Háskóla Íslands og AMP (Advanced Mana­gement Program) gráðu frá IESE Business School á Spáni.

„Það er ánægju­legt að fá Birnu Ósk Ein­ars­dóttur inn í stjórn Já en hún hefur mikla reynslu úr tækni­geir­an­um. Einar og Kjartan þekkja félagið mjög vel og hafa tekið þátt í umbreyt­ingum félags­ins að und­an­förnu yfir í að öfl­ugt upp­lýs­inga­fyr­ir­tæki sem byggir á góðum tækni­lausnum og fram­úr­skar­andi þjón­ust­u,“ segir Sig­ríður Mar­grét Odds­dótt­ir, for­stjóri Já, í frétta­til­kynn­ingu frá félag­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent