Sigþór hættur hjá Íslenskum verðbréfum

Stjórn ÍV hefur komist að samkomulagi við framkvæmdastjórann um að hann láti af störfum.

Íslensk verðbréf
Auglýsing

Stjórn Íslenskra verð­bréfa og Sig­þór Jóns­son hafa kom­ist að sam­komu­lagi um að Sig­þór láti af störfum sem fram­kvæmda­stjóri félags­ins.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Íslenskum verð­bréf­um.

Sig­þór tók við starfi fram­kvæmda­stjóra í febr­úar 2015 og leiddi í kjöl­farið nýja fjár­festa að félag­inu og hefur ásamt þeim unnið ötul­lega að upp­bygg­ingu félags­ins sam­hliða því að stýra þörfum breyt­ingum á félag­inu.  

Auglýsing

Á þessum umbreyt­inga­tíma hefur fyr­ir­tækið mark­visst skotið fleiri stoðum undir rekstur sinn. Nægir þar að nefna aukna áherslu á sér­hæfðar fjár­fest­ingar en Íslensk verð­bréf hafa að und­an­förnu komið að nokkrum stórum verk­efnum á því sviði. Í því sam­bandi má nefna nýja fram­taks­sjóði og ráð­gjöf sem fyr­ir­tækið veitti banda­ríska eigna­stýr­ing­ar­fyri­tæk­inu Pt Capi­tal Advis­ors vegna kaupa þeirra á fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Nova. Á sama hátt hefur aukin áhersla verið lögð á miðlun verð­bréfa og hafa Mark­aðsvið­skipti Íslenskra verð­bréfa aukið hlut­deild sína jafnt og þétt að und­an­förnu. Sem fyrr leggja Íslensk verð­bréf mikla áherslu á eigna­stýr­ingu fyrir fag­fjár­festa og ein­stak­linga sem og rekstur sjóða innan ÍV sjóða hf. en þar hefur fram­boð sjóða auk­ist tals­vert. Félagið er nú með um 125 millj­arða króna í virkri stýr­ingu fyrir við­skipta­vini sína.

Þær breyt­ingar sem Sig­þór hefur leitt að und­an­förnu treysta Íslensk verð­bréf  enn frekar sem  al­hliða verð­bréfa­fyr­ir­tæki, það eina á land­inu sem hefur höf­uð­stöðvar sínar utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Haft er eftir Sig­þóri að það hafi verið for­rétt­indi að vinna fyrir ÍV. „Það hafa verið for­rétt­indi að fá að taka þátt í þeim breyt­ingum sem Íslensk verð­bréf hafa farið í gegnum með því góða fólki sem starfar hjá félag­inu og ekki síst fyrir mig og fjöl­skyld­una að kynn­ast hinu góða sam­fé­lagi á Akur­eyri. Góður árangur hefur náðst með hæfum hópi starfs­manna og fram­tíð félags­ins er björt. Ég vil þakka frá­bæru starfs­fólki, stjórn, hlut­höfum og ekki síst við­skipta­vinum inn­an­an­lands sem erlendis fyrir sam­starfið og óska þeim alls hins besta í fram­tíð­inn­i.“

Stjórn Íslenskra verð­bréfa þakkar Sig­þóri fyrir vel unnin störf í þágu félags­ins, að því er segir í til­kynn­ingu. „Stjórnin og Sig­þór hafa átt ánægju­legt sam­starf í gegnum þessar breyt­ingar á fyr­ir­tæk­inu og metur stjórnin frum­kvæði hans og áræðni við stjórnun félags­ins á und­an­förnum árum.“

Í stjórn ÍV eru auk Eiríks, Anna Guð­munds­dótt­ir, Harpa Sam­ú­els­dótt­ir, Chris Van Aeken og Stein­grímur Pét­us­son.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent