Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í Marple-málinu svokallaða í annað sinn í dag, og voru þrír af ákærðu dæmdir sekir. Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrverandi fjármálastjóri Kaupþings, var sýknuð.
Hæstiréttur ómerkti fyrri dóm, þar sem dr. Ásgeir Brynjar Torfason, sem var meðdómandi í málinu og hluti af fjölskipuðum dómi, var úrskurðaður vanhæfur vegna ummæla hans og athafna á samfélagsmiðlum.
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings, var dæmdur í eins árs fangelsi en í dómnum sem var ómerktur var hann dæmdur í hálfs árs fangelsi. Refsingin var því þyngd frá fyrri dómi.
Magnús Guðmundsson, fyrrum bankastjóri Kaupþings í Lúxemborg, var dæmdur í 18 mánaða fangelsi líkt og í fyrri dómi. Skúli Þorvaldsson var dæmdur í sex mánaða fangelsi líkt og í fyrri dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Skúli var sýknaður af ákæruatriðum sem snéru að hylmingu af ásetningu og peningaþvætti af ásetningi.
Hreiðar Már og Guðný Arna voru ákærð fyrir fjárdrátt og umboðssvik. Magnús var ákærður fyrir hlutdeild í fjárdrætti og umboðssvikum og Skúli var ákærður fyrir hylmingu. Málið, eins og embætti sérstaks saksóknara lagði það upp, snýst um tilfærslu á um átta milljörðum króna úr sjóðum Kaupþings til félagsins Marple Holding, í eigu Skúla, án þess að lögmætar viðskiptalegar ákvarðanir lægju þar að baki.