„Samkeppniseftirlitið hefur í dag hafnað samruna Haga hf. og Lyfju hf. en þann 17. nóvember 2016 tilkynntu Hagar um kaup á öllu hlutafé í Lyfju.“
Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallar. Kaup Haga á Olís eru enn til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu.
Kaupsamningurinn var undirritaður með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins, að því er segir í tilkynningunni. Fyrirvörum vegna niðurstöðu áreiðanleikakönnunar var aflétt í apríl sl., en Samkeppniseftirlitið hefur nú með úrskurði hafnað samrunanum. „Niðurstaðan er vonbrigði og mun félagið taka hana til sérstakrar skoðunar næstu daga. Þá ber að árétta að Hagar höfðu ekki tekið við rekstri Lyfju og mun ákvörðunin því ekki hafa áhrif á áður birt reikningsskil félagsins,“ segir í tilkynningunni.
Markaðsvirði Haga er nú 45,6 milljarðar króna, en gengi félagsins hefur lækkað nokkuð að undanförnu.