Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Jón Gunnarsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, Þorsteinn Víglundsson, og formaður og framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa undirritað viljayfirlýsingu um framlög úr fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna fasteigna í þágu fatlaðs fólks.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni verður fasteignasjóðnum nú falið varanlegt hlutverk til jöfnunar á aðstöðu sveitarfélaga á þessu sviði með greiðslu framlaga „til uppbyggingar fasteigna sem nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk með miklar og sértækar stuðningsþarfir.“
Kemur fram í viljayfirlýsingunni að nái lagabreytingarnar fram að ganga muni fasteignasjóður veita allt að 325 milljónum króna til verkefna á þessu sviði þegar á þessu ári.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stjórnvöldum sem birt var í gær.
Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga var komið á fót í tengslum við yfirfærslu á málefnum fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga 1. janúar 2011.
Sjóðurinn tók þá yfir fasteignir í eigu ríkisins sem nýttar höfðu verið í þjónustu við fatlað fólk og hefur hlutverk hans verið að tryggja sem jafnasta aðstöðu sveitarfélaga með því að leigja eða selja þeim fasteignirnar til slíkra afnota.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Jón Gunnarsson, mun í upphafi þings í haust leggja fram frumvarp til laga sem felur í sér nauðsynlegar breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga til að styðja breytt hlutverk fasteignasjóðsins.