Ráðherra braut ekki reglur en myndatakan „óvenjuleg“

Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, var mynduð í fatnaði frá bresku tískuvörumerki í sal Alþingis. Myndin var birt á Instagram síðu þess í auglýsingaskyni.

Myndin birtist á Instagram síðu Galvan London fyrir þremur dögum síðan. Í myndatexta segir að Björt sé ráðherra og að myndin sé tekin í sal Alþingis.
Myndin birtist á Instagram síðu Galvan London fyrir þremur dögum síðan. Í myndatexta segir að Björt sé ráðherra og að myndin sé tekin í sal Alþingis.
Auglýsing

Björt Ólafs­dótt­ir, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, tók strangt til tekið ekki þátt í að brjóta reglur Alþingis þegar hún var mynduð í aug­lýs­inga­skyni í sal Alþingis fyrir breska tísku­vöru­merkið Gal­van London. Þetta segir Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþing­is. Myndin var birt á Instagram-­sóðu Gal­van London.

„Þetta kemur mér mjög á óvart, strangt til tekið er þetta ekki brot á regl­unum en þetta er auð­vitað dálítið óvenju­leg­t,“ segir Helgi. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Þar segir að Sóla Kára­dótt­ir, list­rænn stjórn­andi Gal­van London, og Björt séu vin­konur til margra ára. Und­an­farið hafi birst margar myndir teknar víðs vegar á Íslandi á Instagram-­síðu tísku­vöru­merk­is­ins af íslenskum vin­konum Sólu í fatn­aði frá Gal­van London. Björt er þeirra á með­al.  

Auglýsing

Frétta­blaðið hafði eftir Helga að sam­kvæmt reglum Alþingis væri mynda­tökur í einka­þágu óheim­ilar í þingsalnum hvort sem sé á þing­fundi eða utan. Það væri óheim­ilt að taka ljós­myndir inn í sal­inn, úr hlið­ar­sölum eða gangi, þar sem ljós­mynd­arar standa fyrir utan sal­inn sjálf­an. Mynda­tökur í tengslum við blaða- eða sjón­varps­við­töl, til að taka aug­lýs­inga­myndir og yfir­leitt ann­ars inni í sjálfum þingsaln­um,  væru sem sagt óheim­il­ar. Mynda­tökur væru að öðru leyti heim­ilar í þing­hús­inu og Skála Alþing­is, svo og á skrif­stofum þing­manna. 

Blaðið hefur upp­fært frétt sína, en nú segir að það sé heim­ilt að taka ljós­myndir inn í sal­inn. 

Björt sagði í sam­tali við Frétta­blaðið að hún hefði ekki brotið neinar regl­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent