Birgitta hættir eftir kjörtímabilið

Þekktasti og reynslumesti þingmaður Pírata ætlar ekki að bjóða sig fram til Alþingis aftur, sama hvort yfirstandandi kjörtímabil verði stutt eða langt.

Tími Birgittu Jónsdóttur í stjórnmálunum er senn á enda.
Tími Birgittu Jónsdóttur í stjórnmálunum er senn á enda.
Auglýsing

Birgitta Jóns­dótt­ir, þing­maður Pírata, ætlar ekki að bjóða sig fram til Alþingis að nýju þegar yfir­stand­andi kjör­tíma­bili lýk­ur. Skiptir þar engu hvort kjör­tíma­bilið verði stutt eða langt. Hún segir það ekki hollt að vera of lengi á þingi og að eng­inn sé ómissandi, og sann­ar­lega ekki hún. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Birgitta hefur setið á þingi frá árinu 2009. Fyrst var hún kjörin á þing fyrir Borg­ara­hreyf­ing­una skamm­lífu sem hún tók þátt í að stofna en sat lengst af á því kjör­tíma­bili undir merkjum Hreyf­ing­ar­inn­ar. Birgitta kom að stofnun Pírata sem sitj­andi þing­maður og leiddi flokk­inn í kosn­ing­unum 2013, þegar hann fékk 5,1 pró­sent atkvæða og náði þremur mönnum á þing.

Birgitta hafði gefið það út fyrir síð­ustu kosn­ingar að hún ætl­aði sér að hætta fyrir þær. Henni sner­ist hins vegar hugur og segir að það hafi verið svo hún gæti miðlað þekk­ingu sinni í stórum hópi nýtta þing­manna Pírata sem skorti reynslu af þing­störf­um. Píratar sigldu með him­in­skautum í könn­unum í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga og mæld­ust um tíma með hátt í 40 pró­senta fylgi. Það dal­aði þegar leið að kjör­degi í októ­ber 2016 og þegar talið hafði verið upp úr köss­unum kom í ljós að flokk­ur­inn hafði fengið 14,5 pró­sent atkvæða og tíu þing­menn. Birgitta fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta Íslands í byrjun des­em­ber 2016 og reyndi að mynda fimm flokka rík­is­stjórn með Sam­fylk­ingu, Vinstri græn­um, Bjartri fram­tíð og Við­reisn, en án árang­urs.

Auglýsing

Í Frétta­blað­inu er haft eftir Birgittu að starf þing­manns sé sam­fé­lags­þjón­usta. Þegar upp verði staðið von­ast hún til að hafa gert gagn. „Við lifum á ögrandi tímum í heim­inum og brýnt að vera þar sem maður nýt­ist best. Starfið er gef­andi en að sama skapi þykir mér erfitt að vera ekki í aðstöðu til að breyta hlutum sem þarf að breyta. Hefði eng­inn haft hug­rekki til að setja á hita­veitu í stað olíu­kynd­ingar væru Íslend­ingar ekki með sömu lífs­gæði. Ég er hrædd­ust við stöðn­un. Fólk þarf að hætta að vera hrætt við breyt­ingar því lífið er sam­felld breyt­ing og ekki til neinn stöð­ug­leiki. Stöð­ug­leiki merkir stöðnun og allir sem horft hafa á vötn sem fá ekki ferskt vatn í sig horfa upp á líf­ríkið smám saman súrna og deyja.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent