Lýsa yfir vantrausti á Sveinbjörgu Birnu

Ungir Framsóknarmenn í Reykjavík vonast til þess að málflutningur oddvita flokksins verði ekki til þess að „varpa skugga á það mikilvæga og góða starf sem borgarstjórnarflokkurinn hefur unnið.“

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir 3.8.2017
Auglýsing

Stjórn félags ungra Fram­sókn­ar­manna í Reykja­vík (SIG­RÚN) hefur lýst yfir van­trausti á Svein­björgu Birnu Svein­björns­dóttir borg­ar­full­trúa Fram­sókn­ar­flokks og Flug­vall­ar­vina. Ástæðan eru ummæli hennar um börn

hæl­is­leit­enda en hún sagði í nýlegu við­tali að skóla­ganga þeirra væri „sokk­inn kostn­að­ur“ fyrir Reykja­vík­ur­borg.

Í yfir­lýs­ingu félags­ins segir að þær hug­myndir og sú stefna sem Svein­björg Birna tali fyrir gangi í ber­högg við grunn­stefnu Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þar segir enn frem­ur: „Hvað varðar meg­in­stefnu borg­ar­stjórn­ar­flokks Fram­sóknar og Flug­vall­ar­vina. Að auka lóða­fram­boð, fjölga félags­legum íbúðum og gera náms­gögn grunn­skóla­nema gjald­frjáls.  Vill stjórn ungra Fram­sókn­ar­manna í Reykja­vík, lýsa yfir fullum stuðn­ingi við borg­ar­stjórn­ar­flokk Fram­sóknar og Flug­vall­ar­vina. Ungir Fram­sókn­ar­menn í Reykja­vík vona að mál­flutn­ingur Svein­bjargar Birnu, verði ekki til þess að varpa skugga á það mik­il­væga og góða starf sem borg­ar­stjórn­ar­flokk­ur­inn hefur unnið að öðru leyt­i.“

Félagið bæt­ist í stóran hóp Fram­sókn­ar­manna sem hafa for­dæmt ummæli Svein­bjargar Birnu en er með þeim fyrstu til að lýsa opin­ber­lega van­trausti á hana. Sig­­urður Ingi Jóhanns­­son, for­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins, sagði við RÚV í gær  að ummæli Svein­­bjargar Birnu væru óheppi­­leg og klaufsk. Það eigi ekki að tala með þessum hætti um börn. Sig­­urður Ingi sagði að ummælin end­­ur­­spegli ekki stefnu Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins.

Auglýsing
„Við höfum byggt okkar umræðu meðal ann­­ars á síð­­asta flokks­­þingi á því að aðlögun barna af erlendum upp­­runa séu okkar sam­­fé­lagi mjög mik­il­væg og að mennta­­kerfið sé besti vett­vang­­ur­inn til þess. Ég lít svo á að þessi ummæli Svein­­bjargar séu bæði óheppi­­leg og klauf­sk, maður talar ekki svona um börn.“

Guð­f­inna Jóhanna Guð­­munds­dóttir, sem er líka borg­­ar­­full­­trúi flokks­ins í Reykja­vík, og ungir Fram­­sókn­­ar­­menn á lands­vísu er einnig á meðal þeirra sem hafa for­dæmt ummæl­in.

Svein­­björg Birna fór í útvarps­­við­­tal á Útvarpi Sögu fyrir viku síðan og sagði þar að það fælist  „sokk­inn kostn­að­­­ur“ í því fyrir Reykja­vík­­­­­ur­­­borg að taka við börnum hæl­­­is­­­leit­enda í grunn­­­skóla borg­­­ar­inn­­­ar. Hún  sagði að þeirri hug­­­mynd hafi skotið upp hvort eðli­­­legt sé að börn hæl­­­is­­­leit­enda verði sett í sér­­­stakan skóla þar til að ákvörðun liggi fyrir um hvort fjöl­­­skyldur þeirra fái dval­­­ar­­­leyfi eða ekki.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent