Sjálfstæðismenn vilja kjósa leiðtoga en stilla upp í önnur sæti

Hverfisfélög Sjálfstæðisflokksins vilja fá fólk úr sínum hverjum á lista flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Tillaga hefur verið lögð fram um blandaða leið við val á lista til að tryggja það.

Halldór Halldórsson er oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík sem stendur.
Halldór Halldórsson er oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík sem stendur.
Auglýsing

Til­laga um að fara bland­aða leið við val á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem boð­inn verður fram í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Reykja­vík á næsta ári var lögð fram fyrir stjórn Varð­ar, full­trúa­ráðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Í bland­aðri leið felst að leið­togi fram­boðs­list­ann yrði kjör­inn en að stillt yrði upp í önnur sæti á hon­um. Til­lagan hefur ekki verið afgreidd. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu.

Þar er rætt við Gísla Kr. Björns­son, for­mann Varð­ar, sem að innan stjórnar Varðar væri vilji til þess að sæti á list­anum myndu dreifast betur meðal hverfa borg­ar­inn­ar. Það væri ákall innan hverf­is­fé­laga Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík um að fólk úr við­kom­andi hverfum myndi sitja á lista flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­un­um, sem fara fram í lok maí 2018.

Eftir síð­ustu kosn­ingar var mynd­aður meiri­hluti í Reykja­vík­ur­borg sem sam­an­settur er af Sam­­fylk­ingu, Bjartri fram­­tíð, Vinstri grænum og Píröt­­um. Könnun Gallup fyrir Við­­skipta­blaðið, sem gerð var í byrjun júní síð­ast­lið­ins, sýndi að hann myndi ekki verða í neinum vand­ræðum með að halda ef kosið hefði verið þá. Saman mæl­d­ust flokk­­arnir með 61,4 pró­­sent fylgi en fengu 61,7 pró­­sent í kosn­­ing­unum 2014. Valda­hlut­­föll innan meiri­hlut­ans myndu þó eitt­hvað breyt­­ast. Sam­­fylk­ing­in myndi til að mynda fara úr 31,9 pró­­sent fylgi í 22,3 pró­­sent fylgi.

Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist stærsti flokk­ur­inn í borg­inni sam­kvæmt könn­un­inni með 26,8 pró­sent fylgi. Það er aðeins meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2014, þegar 25,7 pró­sent borg­ar­búa kusu hann. Breyt­ingin á fylg­inu er þó vel innan vik­marka könn­un­ar­innar sem voru +/- 2,6 pró­sent. Raunar hefur fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­borg hald­ist nokkuð stöðugt allt yfir­stand­andi kjör­tíma­bil. Hann mæld­ist með 25,3 pró­sent fylgi í des­em­ber 2014 og 23,4 pró­sent fylgi í sept­em­ber 2015. Hall­dór Hall­dórs­son er núver­andi odd­viti flokks­ins í Reykja­vík.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent